Eftir sigur sósíalistans Zohran Mamdani í borgarstjórnarkosningum í New York hafa viðvörunarorð Peter Thiel frá árinu 2020 fengið aukna athygli. Sigur Mamdani er merki um djúpa óánægju kjósenda, sérstaklega meðal yngri Bandaríkjamanna um að kerfið sé ekki að virka fyrir þá.
Hann varar við því að þegar stjórnmálamenn hunsa mál eins og hátt húsnæðisverð og háar námskuldir gæti það ýtt fleiri kjósendum í átt að róttækum efnahagslegum hugmyndum. Hvetur hann stjórnmálamenn til að taka á erfiðri stöðu ungs fólks með raunhæfum lausnum.
Peter Thiel er þekktur frumkvöðull og áhættufjárfestir, best þekktur sem meðstofnandi PayPal og frumfjárfestir í Facebook. Þá stofnaði hann meðal annars Palantir Technologies og er stór fjárfestir í SpaceX og Airbnb.
Í tölvupósti sem hann skrifaði á árinu 2020 til m.a. Mark Zukerberg, stofnanda Facebook og Marc Andreessen skrifaði hann meðal annars: „Þegar 70% aldamótakynslóðarinnar (e. millenials) segja að þeir séu fylgjandi sósíalisma, þurfum við að gera betur en að afskrifa þá með því að segja að þeir séu heimskir eða forréttindapésar eða heilaþvegnir; við ættum að reyna að skilja af hverju.“
Hátt húsnæðisverð hefur hjálpað fjárfestum og eldra fólki að efnast en skaðað yngra fólk sem er útilokað frá húsnæðismarkaðnum. „Ef þú gerir unga fólkið að leiguliðum, ættir þú ekki að vera hissa ef það verður að lokum kommúnískt,“ sagði hann jafnframt.
Þá bætti hann við að margt ungt fólk sé ekki endilega hugmyndafræðilegir sósíalistar heldur hafi kerfið brugðist þeim. „Sagt er við yngri kynslóðir að ef þær geri sömu hlutina og fyrri kynslóðir gerðu, muni hlutirnir ganga vel fyrir þeim,“ sagði hann „En samfélagið hefur breyst mjög mikið og það virkar ekki alveg á sama hátt.“
Þó að viðvörunarorð Peter Thiel áttu við stöðuna í Bandarísku samfélagi má margt heimfæra úr þeim yfir á Ísland.