Tónlistarmaðurinn Patrik Snær Atlason, öðru nafni Pretty Boy Tjokkó, segist hafa lent í „skemmtilegri lífsreynslu“ í Krambúðinni í Háskólanum í Reykjavík.
„Lenti í skemmtilegri lífsreynslu í Krambúðinni í Hr það sem ég var að fylla á Zero-ið og nammið og allt stöffið.“
Hann segist hafa verið kallaður öllum illum nöfnum, þar á meðal „lagergómur“.
„Stay in school“
Patrik segir að hann hafi bara eitt um þetta að segja.
„Ef þið viljið ekki enda eins og ég, þar sem ég er bara með framhaldsskólapróf, stay in school.“
Hættur að gigga fyrir aðra
Í lok júlí sagðist Patrik hættur að taka að sér gigg fyrir aðra. Hann tók fram að hann væri áfram tónlistarmaður, en ætlaði framvegis aðeins að koma fram á sínum eigin tónleikum. Meðal þess sem hann sagðist ekki vilja gera lengur var að spila í útskriftum og á menntaskólaböllum.