Ráða karlmann í kjól með varalit og fela kynferðisbrot á leikskóla

Nú er í tísku að öll dýr í skóginum eiga að vera vinir. Það á líka vera þó það sé á kostnað barna, velferð þeirra. Akureyrarbær hikar ekki, hundsar hvoru tveggja.

Þegar leikskóli ræður karlmann sem kallar sig konu, mætir í kjól og með varalit er verið að senda leikskólabörnum röng skilaboð. Að þvinga þau til að nota kvenmannsnafn um karlmann og fornafnið hún, er fyrir neðan allar hellur.

Auglýsing

Karlmaður getur aldrei verið kona, svo einfalt er það. Kvengervill getur komið hreint til dyranna, sagt sannleikann, sérstaklega þegar börn eru annars vegar.

Við eigum ekki að innprenta ranghugmyndum í óþroskaðra heila barna, heldur ekki á leikskólum landsins. Það er ábyrgðarhluti leikskólastjóra að ráða slíkan karlmann inn á leikskóla og krefjast þess að hann sé kallaður kona eða hún af börnunum.

Hvaða mörk og eðlisávísun er fjarlægð frá börnum með svona ranghugmyndum?

Enn sorglegra er þegar aðrir starfsmenn taka þátt í að ljúga og blekkja leikskólabörn. Starfsfólk sem börnin treysta og foreldrarnir. Því miður virðast foreldrar leikskólabarna ekki nógu hugrakkir til að segja frá og mótmæla. Vilja ekki rugga bátnum. En ljóst er, sannleikurinn er undir, og það þurfa foreldrar að hugsa um. Hvaða sannleik viltu að barnið þitt fái í gegnum leikskólastarf? Að fræða ung börn um trans og kynhneigð hefur alvarlegar afleiðingar á náttúrulegan þroska þeirra | Frettin.is

Akureyrarbær er ekki traustsins virði

Akureyrarbær sýnir svo ekki verður um villst að þeim er vart treystandi fyrir börnum bæjarins. Málin reka hvert annað.

Kynferðisbrot í leikskóla er haldið frá foreldrum, Foreldrar ekki látnir vita af barnarverndarmáli • Kaffið.is – Heldur þér vakandi

Talað við þau tveimur árum síðar. Traustvekjandi stjórnmálamenn þar á ferð og leikskólastjóri. Margt af þessum stjórnmálamönnum gefa kost á sér til áframhaldandi setu. Er traustið ekki farið?

Í grunnskólann fá trúarsamtök að koma inn til að ljúga að börnum um kyn og kynvitund og þess vegna þarf samtök eins og Drenglyndi sem reynir af veikum mætti að berjast gegn þessu í skólakerfinu. Það á ekki að ljúga að leik- og grunnskólabörnum. Raunveruleikinn raskast hjá þeim og ranghugmyndir um kyn fólks verða til.

Foreldrar á Tröllaborgum þurfa að rísa upp, stefna leikskólastjóra og stjórnmálamönnum sem tóku þessa ákvörðun, að leyna foreldra um alvarlegt atvik á kostnað barna. Það verður að láta sverfa til stáls, heill barna er í húfi.

Yfirlýsing bæjarins

Ábyrgaðarleysi ráðamanna á Akureyri kemur klárlega í ljós með yfirlýsingu sem þeir senda frá sér og halda svo að allt lagist við það.

Forsvarsmenn bæjarins segja ,, Öryggi og velferð allra barna skal ávallt og undantekningarlaust vera í fyrirrúmi þegar þjónusta sveitarfélagsins er annars vegar og mikilvægt er að foreldrar geti borið fullt traust til þeirra verkferla sem unnið er eftir.“

Eitthvað hafa þeir ruglast, velferð barna í leik- og grunnskólum bæjarins er ekki í fyrirrúmi þegar trúarsamtökum er hleypt inn í skólana með lygar og þvælu um að kyn sé fljótandi, að kynin séu fleiri en tvö og að foreldrar geti sér til um kyn eigið barns.

Í yfirlýsingunni segir líka ,, Einnig er lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum.“

Brot á börnum, það er brot á börnum að halda því fram að strákur geti verið stelpa og öfugt. Það er brot á börnum að innprenta þeim að hægt sé að skipta um kyn, það er ekki raunverulegur möguleiki. Þrátt fyrir þessi brot bæjaryfirvalda bregðast þau ekki við kvörtunum foreldra og kennara þegar kvartað er undan að þessum áróðri í skólum bæjarins. Svo ekki sé talað um flöggun á fánastöngum skólanna, hreinn og klár áróður.

Bærinn og stjórnendur stofnanna brjóta viljandi á velfeerð barna með gjörðum sínum og ákvörðunum.Einnig er lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum.,,Einnig er lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum.“ ,,Einnig er lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum.“

Helga Dögg Sverrisdóttir

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing