Logi Einarsson menningarmálaráðherra hefur skipað Jónas Má Torfason sem formann nefndar sem fer með úthlutun endurgreiðslna til kvikmyndagerðar á Íslandi.
Jónas Már er sonur Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og hefur starfað innan Samfylkingarinnar um árabil.
Fréttastofa RÚV greindi fyrst frá málinu.
Nefndin, sem Logi skipar Jónas formann yfir, hefur það hlutverk að fjalla um ríkisendurgreiðslur vegna kvikmynda og sjónvarpsverkefna hér á landi.
Á þessu ári nema þessar greiðslur allt að sex milljörðum króna.
Samkvæmt lögum skipa tveir ráðherrar sinn fulltrúa hvorn, annars vegar sá sem fer með kvikmyndamál og hins vegar fjármálaráðherra, en formaður nefndarinnar er skipaður án tilnefningar.
Skipun Jónasar hefur vakið umræðu í ljósi tengsla hans við bæði ríkisstjórnina og flokk Loga.
Auk þess að vera sonur sitjandi ráðherra hefur Jónas verið virkur í starfi Samfylkingarinnar, meðal annars sem formaður Félags frjálslyndra jafnaðarmanna og fulltrúi í stjórnum flokksins.
Í samtali við RÚV staðfestir Jónas að hann hafi tekið formlega við embættinu á mánudag og stýrt sínum fyrsta nefndarfundi í dag.