Hópur manna réðist nýlega á Fabirce Balanche háskólakennara í kennslustund við háskólann í Lyon í Frakklandi. Í miðjum fyrirlestri, um pólítíska landafræði innan ESB, brutust hettuklæddir nemendur inn í salinn.
Þeir umkringdu hann og minnstu munaði að það færi illa, sagði kennarinn.
,,Ég ákvað að drífa mig í burtu en hópurinn reyndi að stoppa mig og elta,“ sagði Fabrice Balanche við Le Figaro.
Sem betur fer gripu fjórir nemendum mínir inn í og þökk sé þeim komst ég út úr salnum sagði Fabrice.
Háskólinn hefur upplifað skemmdarverk og truflun á kennslu í langan tíma.
Þetta er í fyrsta sinn sem við upplifum mótmæli Íslamista segir kennarinn sem varar við aukinni öfgaskoðun meðal múslimskra nemenda.
Í myndbandi sem tekið var tekið upp á meðan truflunin átti sér stað má heyra slagorð sem tengjast átökunum í Miðausturlöndum.
,,Zionistar, rasistar, þið eru hryðjuverkamenn“ hrópuðu hettuklæddu stúdentarnir meðal annars á meðan þeir veifuðu palestínska fánanum.
Hér má horfa á myndbandið.
Fabrice Balanche, maître de conférences à l’université Lyon II, a été interrompu et pris à partie en plein cours, par un groupe de jeunes militants. Qualifié de «sioniste», il s’était opposé à la tenue d’une soirée de rupture de jeûne du ramadan dans une salle de l’université. pic.twitter.com/PEZJnHjUIq
— Le Figaro (@Le_Figaro) April 3, 2025
Sérfræðingur á sínu sviði
Facrice Balanche, sérfræðingur í Mið-Austurlöndum, er oft í fjölmiðlum.
Hann er sakaður um að styðja einræðisherra Sýrlands, Bashar al-Assad, sem steypt var af stóli.
Það má rekja þessa fullyrðingu til ummæla sem hann lét falla um núverandi leiðtoga Sýrlands, Ahmed Al- Sharaa, sem hann telur vera úlf í sauðagæru.
Það er þrungið andrúmsloft í háskólanum vegna stríðs Ísrael gegn hryðjuverkasamtökunum Hamas og stjórnarskiptunum í Damaskus í Sýrlandi.
Balanche telur það þó bara hluta af brjálæðinu gegn honum.
Það er líka þrýstingur múslíma á forystu skólans að fá tækifæri til að íslamvæða háskólann.
Hefur gerst áður
Hópur nemenda kom inn á háskólasvæðið um daginn, þeir höfðu ekki fengið leyfi til að halda athöfn í tengslum við föstu mánuð múslíma, Ramadan.
Þeir töldu það mismunun þegar háskólinn leggur án vandkvæða til húsnæði fyrir aðra starfsemi eins og jólaviðburði.
Balanche studdi háskólann í þeirri afstöðu sinni í viðtali við sjónvarpsstöðina CNews.
Nokkrum dögum síðar var ráðist á hann.
Múslimskir nemendur, sem eru bókstafstrúar, hafa líka brugðist illa við nýlegri gagnrýni Blanche á ákveðna imama sem hann telur réttlæta sjáfsmorðssprengjuárásir.
Orðið ,,íslamfóbía“ hefur fest sig við kennarann vegna reglulegrar umræðu hans um íslam bæði í Mið-Austurlöndum og í Frakklandi.