Raðnauðgari ráðinn til lögreglunnar í London – Slakað á bakgrunnsskoðun til að uppfylla „fjölbreytileikakröfur“

Bresk úttekt á ráðningum og bakgrunnsskoðunum hjá Metropolitan lögreglunni í London hefur leitt í ljós að lögreglumaður sem síðar reyndist raðnauðgari fékk inngöngu í lögregluna.

Samkvæmt skýrslunni var ákvörðun um að hleypa honum inn í lögregluna tekin í tengslum við átak til að fjölga lögreglumönnum úr minnihlutahópum.

Umsókn hafnað en ákvörðun snúið við

Auglýsing

Lögreglumaðurinn sótti um starf hjá Metropolitan lögreglunni árið 2020.

Bakgrunnsskoðun leiddi í ljós að maðurinn hafði verið sakaður um að nauðga barni árið 2017 og umsókn hans var í fyrstu hafnað.

Síðar var þeirri ákvörðun snúið við af sérstakri nefnd innan lögreglunnar, en í henni sátu meðal annars háttsettir yfirmenn.

Í skýrslunni kemur fram að vilji til að auka fjölbreytni innan lögreglunnar hafi haft áhrif á niðurstöðuna.

„Herferð nauðgana“ meðan hann var í starfi

Eftir að hann hóf störf beitti lögreglumaðurinn að minnsta kosti tvö fórnarlömb kynferðisofbeldi, þar af eitt barn yngra en 13 ára.

Dómstólar lýstu ódæðunum sem skipulagðri „herferð nauðgana“.

Hann var sakfelldur fyrir mannrán og nauðgun og dæmdur í fangelsi og þarf að afplána að lágmarki 13 ár.

Hluti af víðtækum vanda

Málið er eitt af 131 tilfellum þar sem bakgrunnur lögreglumanna eða starfsmanna Metropolitan lögreglunnar var ekki skoðaður með fullnægjandi hætti og lögreglumennirnir fóru síðar að fremja alvarleg afbrot eða sýna stórfellda vanrækslu í starfi.

Skýrslan dregur einnig fram annað mál þar sem bakgrunnsskoðun brást.

Þar var lögreglumaður ráðinn án þess að ásakanir um heimilisofbeldi kæmu í ljós.

Sá var síðar sakfelldur fyrir fjölda kynferðisbrota.

Þúsundir ekki rannsakaðir með fullnægjandi hætti

Úttektin nær yfir tíu ára tímabils fram til mars 2023.

Þar kemur fram að yfir 5.000 lögreglumenn og starfsmenn hafi ekki fengið fullnægjandi bakgrunnsskoðun.

Þúsundir tilvísana voru aldrei kannaðar og í sumum tilvikum var formlegri synjun á bakgrunnsskoðun snúið við innan lögreglunnar sjálfrar.

Á sama tíma stóð yfir landsátak til að ráða nýja lögreglumenn, þar sem markmiðið var að fjölga um 20.000 innan þriggja og hálfs árs.

Fjármögnun var bundin við það að markmiðum væri náð, sem að mati skýrsluhöfunda skapaði verulegan þrýsting á yfirstjórn lögreglunnar til að víkja frá hæfniskröfum og slaka verulega á eða jafnvel sleppa því að skoða afbrotaferil manna algjörlega.

Traust almennings á lögreglu stórskaddað

Í skýrslunni segir að röð ákvarðana hafi samanlagt leitt til þess að óhæfir einstaklingar fengu eða héldu störfum innan lögreglunnar.

Þetta hafi stuðlað að því sem kallað er „lögregluvald sem veldur borgurum skaða“ og grafið undan trausti almennings til lögreglu.

Yfirvöld boða rannsókn og hreinsun

Núverandi stjórn Metropolitan lögreglunnar segir að verklag hafi verið bætt og að fjöldi lögreglumanna hafi þegar verið rekinn eða látinn sæta endurmati.

Breski innanríkisráðherrann hefur jafnframt boðað sjálfstæða rannsókn á ráðningum og bakgrunnsskoðunum lögreglunnar.

Í yfirlýsingu ráðuneytisins segir að það sé algerlega óásættanlegt að slakað hafi verið á bakgrunnsskoðunum og að almenningur eigi rétt á því að þeir sem gegni lögreglustörfum uppfylli ströngustu kröfur um heiðarleika og hæfni.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing