Samtökin 22, hagsmunasamtök samkynhneigðra, standa fyrir viðburði á Hótel Kríunesi fimmtudaginn 8. maí þar sem heimildarmyndin Rangir líkamar verður sýnd og í kjölfarið fara fram opnar og ögrandi umræður um sjálfsmynd barna og ungmenna í samtímanum.
Í tilkynningu frá samtökunum segir að spurt verður stóru spurninganna: Hvað veldur hratt vaxandi vanlíðan meðal barna? Hvaða áhrif hafa skólar, samfélagsmiðlar og menningarkimar á sjálfsmynd þeirra?
Er verið að bjóða börnum upp á heilbrigðar fyrirmyndir – eða ruglandi hugmyndafræði? Umræðuefnið spannar allt frá transhúmanisma til áhrifa samfélagsins á kynvitund og sjálfsmynd.
Húsið opnar kl. 18.30 og sýning hefst kl. 19.30.
Myndin er 100 mínútur að lengd, með stuttu hléi, og umræðurnar taka 45–60 mínútur. Aðgangseyrir er 2.500 krónur og innifalið eru léttar veitingar.
Einnig er hægt að kaupa hamborgaratilboð og stuðningsvörur á staðnum.
Samtökin segja þetta í fyrsta sinn sem þau þurfa ekki að hlaupa í geðshræringu á síðustu metrunum og hlakka til að taka á móti gestum í ró og næði.