Lögreglumaður var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa hlotið skurði í andliti eftir hnífaárás í miðbæ South Shields á laugardaginn 17. janúar.
Maður um tvítugt hefur verið handtekinn grunaður um alvarlega líkamsárás.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í Northumbria voru tveir lögreglumenn við reglubundið eftirliti á King Street í South Shields þar sem þeir höfðu afskipti af einstakling sem vakti athygli þeirra.
Þegar þeir nálguðust manninn réðist hann á annan lögreglumanninn með hnífi.
Minni háttar meiðsli
Lögreglumaðurinn var fluttur á sjúkrahús til skoðunar og meðferðar.
Meiðslin eru sögð minni háttar.
Lögregla hefur aukið viðveru sína í miðbænum meðan rannsókn stendur yfir og segir að engin hætta steðji að íbúum á svæðinu.
Maður sem var handtekinn á vettvangi er grunaður um að vera ólöglega í landinu og var ákærður fyrir alvarlega líkamsárás.
🚨🇬🇧 WATCH: POLICE OFFICER SLASHED IN KNIFE ATTACK IN SOUTH SHIELDS
Footage from South Shields shows a police officer having his face slashed by a knife-wielding migrant.
Officers under attack, streets out of control, and the public told this is “normal”.
When even police… pic.twitter.com/UjXt6uVJdy
— British Intel (@TheBritishIntel) January 19, 2026