Réðist á tvo lögreglumenn með hnífum og hrópaði „Allahu Akbar“

Tveir lögreglumenn særðust þegar vopnaður maður réðst á þá með hnífum í miðborg Toulouse í Frakklandi síðdegis á mánudag.

Árásin átti sér stað um klukkan 18 í þegar lögreglumennirnir, karl og kona, voru við reglubundið eftirlit.

Auglýsing

Franska dagblaðið La Dépêche du Midi greinir frá því að maðurinn hafi gengið að lögreglubifreiðinni og veifað höndunum. Þegar lögreglumaður í farþegasætinu skrúfaði niður rúðuna reyndi maðurinn að stinga hann með hnífi.

Lögreglumennirnir fóru þá út úr bifreiðinni til að yfirbuga manninn.

Var með þrjá hnífa

Maðurinn hélt árásinni áfram og kom í ljós að hann var með þrjá hnífa á sér. Lögreglumönnunum tókst að ná einum þeirra af honum en hann dró þá upp önnur vopn.

Handtakan reyndist mjög erfið og þurfti meðal annars að beita táragasi til að yfirbuga manninn.

Emilion Esnault, syfirmaður öryggismála hjá borgaryfirvöldum í Toulouse, sagði að maðurinn hefði ítrekað hrópað „Allahu Akbar“ meðan á árásinni stóð.

„Mitt mat er að hann hafi verið ákveðinn í aðmyrða lögreglumennina,“ sagði Esnault.

Hnífsoddur rétt hjá hálsslagæð

Báðir lögreglumennirnir slösuðust í átökunum. Hnífsoddur fór rétt hjá slagæð í hálsi annars þeirra en stór skurður sást einnig á skotheldu vesti hins lögreglumannsins.

Þau voru flutt á sjúkrahús til aðhlynningar.

Esnault sagði að hársbreidd hefði munað að hlutirnir hefðu farið á versta veg.

Maðurinn var handtekinn á vettvangi og settur í varðhald.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing