Réttarhöldin yfir P.Diddy: Nöfn nokkurra frægra einstaklinga dregin fram í dagsljósið

Réttarhöld gegn Sean „Diddy“ Combs hófust formlega 5. maí í New York með vali kviðdóms, en í tengslum við málið kom fram listi með yfir 100 nöfnum.

Meðal þessara nafna eru leikarinn Michael B. Jordan, tónlistarmaðurinn Kanye West og gamanleikarinn Mike Myers.

Auglýsing

Samkvæmt NBC News voru þessi nöfn lögð fyrir væntanlega kviðdómendur til að kanna hvort þeir þekktu einhvern á listanum og hvort það myndi hafa áhrif á hlutdrægni þeirra.

Óvíst hver tengingin er

Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvers vegna þessi nöfn voru á listanum og lögmenn veittu enga skýringu.

Enginn þessara einstaklinga er ákærður eða grunaður í málinu.

Á listanum voru einnig nöfn kvenna sem hafa stefnt Combs, þar á meðal fyrrverandi kærasta hans, Cassie Ventura, sem kærði hann fyrir kynferðislega misnotkun í nóvember 2023 en málið var leyst utan dómstóla daginn eftir.

Þá er Dawn Richard, fyrrverandi meðlimur Danity Kane, einnig á listanum, en hún hefur einnig stefnt Combs fyrir kynferðisbrot.

Combs hefur neitað öllum ásökunum, en eftir að myndband frá 2016 sem sýnir hann ráðast á Cassie birtist árið 2024, birti hann afsökunarbeiðni opinberlega.

Réttarhöldin hefjast 12. maí

Í tengslum við málið verða 12 kviðdómendur og 6 varamenn valdir til að dæma í málinu.

Lögmenn Combs reyndu að fá réttarhöldunum frestað um tvo mánuði en dómarinn hafnaði beiðninni og sagði óljóst hvers vegna undirbúningstíminn sem þeir báðu um væri ekki nægur.

Sean „Diddy“ Combs, 55 ára, stendur frammi fyrir fimm ákærum sem fela í sér m.a. vændi, mannsal og skipulagða glæpastarfsemi.

Hann segis saklaus af öllum ákærum.

Réttarhöldin munu hefjast formlega 12. maí.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing