Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sögð ógna matvælaöryggi Íslendinga

Áform ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttir um að hækka erfðafjárskatt á bújarðir bænda eru harðlega gagnrýnd af Bændasamtökunum eins og greint var frá á vefnum mbl.is á dögunum.

Hingað til hefur verið stuðst við fasteignamat eigna þegar börn erfa bújarðir af foreldrum sínum. Eftir fyrirhugaðar breytingar þarf hins vegar að meta gangvirði lands bújarða. Erfingjar verða sjálfir að borga kostnað við að fá verðmat sérfræðinga sem og að greiða erfðafjárskatt á grunni verðmatsins.

Auglýsing

Land á íslandi er dýrt og ólíklegt er að hefðbundin landbúnaðarframleiðsla geti staðið undir háum verðmiða á landi.  Það getur leitt til þess að landbúnaður leggist víða af þar sem börn sem hefðu ætlað að taka við búi foreldra sína neyðast til að selja landið til að greiða erfðafjárskatt.

Einn viðmælandi Nútímans í bændastétt sagði þessi áform vera hreina ógn við landbúnað í landinu og þar með fæðuöryggi landsmanna.

Systurflokkurinn í Bretlandi leggur línurnar

Áform ríkisstjórnarinnar eru þau sömu og ríkisstjórn Breska verkamannaflokksins hrinti nýverið í framkvæmd en breski verkamannaflokkurinn er systurflokkur Samfylkingarinnar.

Breski verkamannaflokkurinn kynnti á árinu 2024 miklar hækkanir á erfðafjárskatt bænda sem gagnrýndar voru harðlega og sögðu bændur að við þetta myndi búrekstur víða leggjast af þar sem börn ættu ekki lengur efni á að taka við búrekstri foreldra sinna. Víðtæk mótmæli voru í Bretlandi vegna ákvörðunar breska verkamannaflokksins.

Í viðtali við bóndann Andrew Smith kom fram „Strákarnir mínir eru búnir að vinna með mér síðan að þeir hættu í skóla og ætluðu að taka við búskapnum af mér. Þetta er síðasti naglinn í líkkistu smábænda. Þegar synir mínir eru farnir, geturðu ekki fundið aðra til að taka við búrekstrinum, enginn annar hefur reynsluna og matur verður ekki lengur framleiddur. Þetta eru endalokin“.

Eftir harða gagnrýni á lagabreytinguna hafa bresk stjórnvöld gefið aðeins eftir og veitt minniháttar eftirgjöf til smábænda. Staða bændastéttarinnar er hins vegar erfið þar sem hækkun skatta sem og síauknar álögur vegna barátturnar við svokallaða hamfarahlýnun hefur reynst bændum sem og öðrum dýr.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing