Stjórn Íslandsspila sf. leggst gegn fyrirhuguðum breytingum á reglugerð um pappírslaust peningahappdrætti Happdrættis Háskóla Íslands (HHÍ), sem dómsmálaráðuneytið kynnti í samráðsgátt stjórnvalda þann 13. mars síðastliðinn.
Í umsögn Íslandsspila segir að breytingin, sem felur í sér að HHÍ verði heimilt að reka happdrættisvélar (spilakassa) í einkahlutafélagi, skorti bæði lagastoð og nauðsynlegan rökstuðning.
Breytingin ekki studd af settum lögum
Í umsögninni, sem Gísli Rafn Ólafsson formaður stjórnar undirritar, segir að hvorki lög nr. 13/1973 né viðeigandi reglugerðarheimildir veiti HHÍ heimild til að færa happdrættisrekstur yfir í dótturfélag.
Vísar stjórnin til þess að ákvæði í fjárlögum fyrir árið 2025 geti ekki komið í stað breytinga á lögum samkvæmt stjórnarskrárbundnum áskilnaði.
Því sé lagagrundvöllur breytingarinnar ófullnægjandi.
Áhyggjur af aðstöðumun og ólögmætum ríkisstuðningi
Íslandsspil lýsir einnig yfir áhyggjum af því að fyrirhuguð breyting auki aðstöðumun milli HHÍ og Íslandsspila á happdrættismarkaði.
Í því samhengi er bent á að HHÍ hafi lengi notið rýmri heimilda í rekstri sínum en Íslandsspil, sem er í eigu Rauða krossins á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Það kunni að grafa undan möguleikum þessara félaga til að sinna lögbundnu hlutverki sínu í almannavörnum.
Engin hámarksvinningur í reglugerð HHÍ
Íslandsspil gagnrýnir að í gildandi reglugerð nr. 455/1993 vanti ákvæði um hámarksfjárhæð vinninga í happdrættisvélum HHÍ, þrátt fyrir skýr lagaákvæði þar um.
Samkvæmt umsögninni sé óásættanlegt að HHÍ ákveði einhliða hámarksvinning upp á 17 milljónir króna, sem sé umtalsvert hærra en hámarksvinningar sem gilda fyrir söfnunarkassa Íslandsspila og sambærilegar vélar erlendis.
Kallar eftir lagabreytingum og samræmingu heimilda
Að lokum ítrekar Íslandsspil fyrri kröfu sína um að söfnunarkössum verði heimiluð samtenging, líkt og HHÍ er heimilt með sínar vélar.
Slík breyting kalli á einfalda lagasetningu og hvetur félagið ráðuneytið til að leggja fram frumvarp hið fyrsta.
Íslandsspil lýsir sig reiðubúið til að taka þátt í frekari vinnu stjórnvalda til að tryggja jafnræði á happdrættismarkaði.