Ritrýnd grein dregur í efa að Kurt Cobain hafi svipt sig lífi árið 1994 – Var hann myrtur?

Ný réttarrannsókn heldur því fram að dauði Kurt Cobain árið 1994 hafi verið manndráp en ekki sjálfsvíg, eins og var opinber niðurstaða yfirvalda í Seattle á um á sínum tíma.

Cobain, forsprakki Nirvana, fannst látinn á heimili sínu 5. apríl 1994, 27 ára að aldri. Dánarorsök var skráð sjálfsvíg með Remington Model 11 20 gauge haglabyssu. Málið var rannsakað af King County réttarmeinafræðingum og lögreglu í Seattle, sem komust að þeirri niðurstöðu að engin merki bentu til að nokkuð sakhæft hefði átt sér stað.

Segja gögn benda til of stórs heróínskammts

Auglýsing

Nú hefur hópur réttarmeinafræðinga birt ritrýnda grein í International Journal of Forensic Science þar sem tíu atriði eru talin styðja þá kenningu að Cobain hafi fyrst verið byrlað með stórum heróínskammti og síðan skotinn.

Samkvæmt hópnum sýni krufningarskýrsla merki um súrefnisskort í líffærum, þar á meðal heila og lifur, sem sé dæmigert fyrir of stóran skammt en ekki dauða af völdum höfuðskots. Þá sé blóðmynstur á vettvangi og staðsetning skothylkis ekki í samræmi hvernig aðstæður ættu að vera ef um sjálfsvíg hefði verið að ræða með þessari tegund af haglabyssu.

Rannsakendur halda því einnig fram að búnaður til fíkniefnaneyslu sem fannst á vettvangi hafi verið óvenju snyrtilega frágenginn og að staðsetning handa Cobains og skortur á blóðslettum veki spurningar.

Yfirvöld hafna endurupptöku

Talsmaður King County réttarmeinafræðingsins segir embættið standa við fyrri niðurstöðu sína. Engin ný gögn hafi komið fram sem réttlæti endurupptöku málsins.

Lögreglan í Seattle hefur einnig staðfest að málið verði ekki opnað að nýju og að afstaða deildarinnar sé óbreytt, dauðsfallið hafi verið sjálfsvíg.

Dauði Cobains hefur verið viðfangsefni samsæriskenninga í áratugi. Aðstandendur nýju rannsóknarinnar segjast þó ekki vera að kalla eftir handtökum heldur að öll gögn komi upp á yfirborðið og frekari skoðun á gögnum.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing