Rússneskur hershöfðingi drepinn í sprengingu

Rússneskur hershöfðingi að nafni Yaroslav Moskalik, féll í sprengingu í bíl í nágrenni Moskvu, höfuðborg Rússlands, í gær. Samkvæmt rússneskum yfirvöldum hafði heimatilbúin sprengja verið sett í bílinn, sem lagt hafði verið nærri heimili hans. Bíllinn sprakk þegar Moskalik gekk fram hjá honum.

Yfirvöld rannsaka sprenginguna og enginn hefur lýst ábyrgð á henni en Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Kreml, kenndi Úkraínumönnum um að hafa staðið að henni.

Auglýsing

Árásin líkist fyrri árásum á rússneska embættismenn, en  hershöfðinginn Igor Kirilov var drepinn í sprengingu í desember í fyrra.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing