Fyrrverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gagnrýndi í færslu á samfélagsmiðlinum X að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra væri farin í viðræður við Evrópusambandið áður en þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna hefði farið fram.
Tilefnið er heimsókn utanríkisráðherra til Brussel þar sem hún ræddi við fulltrúa Evrópusambandsins um aðild Íslands. Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að ESB verður ekki haldin fyrr en 29. ágúst næstkomandi. Ólafur Ragnar telur því að utanríkisráðherra sé að fara fram með viðræður án skýrs umboðs frá þjóðinni.
Mbl.is fjallaði um gagnrýnina – RÚV ekki
Færsla Ólafs Ragnars á X birtist laust eftir klukkan átta á miðvikudagskvöld. Rúmlega klukkutíma síðar birti mbl.is frétt um gagnrýni hans á framgöngu utanríkisráðherra og sagði hann hana fara á bak við þjóðina með samningaviðræðum án umboðs.
Rúmlega fimm klukkustundum síðar birti RÚV frétt um heimsókn Þorgerðar Katrínar til Brussel, en í þeirri umfjöllun var gagnrýni Ólafs Ragnars ekki nefnd.
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, gagnrýndi þetta í færslu á Facebook og skrifaði:
„Þessi frétt er birt á ruv.is eftir að Ólafur Ragnar Grímsson benti réttilega á að Marta Kos stækkunarstjóri teldi viðræður um ESB-aðild við Íslendinga hafnar. Ólafur Ragnar átaldi Þorgerði Katrínu fyrir vinnubrögð hennar. Það er stærri frétt en svo að hún komist inn á ruv.is.“
Clearly negotiations with #EU HAVE ALREADY STARTED; ignoring the referendum at the end of August! Not enough ‘to trust the nation “ to quote the favorite phrase. One must also RESPECT the nation, the will of the people.
P.s What are “Iceland’s specific realities” they discussed? https://t.co/1HyonjQQRQ— Ólafur Ragnar Grímsson (@ORGrimsson) March 18, 2026