Tölur RÚV sýna hærra hlutfall kynsegin í dagskrá en í samfélaginu

Tölur sem kynntar voru stjórn RÚV sýna að hlutfall kynsegin einstaklinga í dagskrá og fréttum miðilsins er hærra en hlutfall þeirra samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofu Íslands.

Ríkisútvarpið heldur utan um tölfræði um „fjölbreytileika og kynjajafnvægi í dagskrá RÚV“ sem hluta af stefnu sinni um að endurspegla fjölbreytileika samfélagsins. Á stjórnarfundi fyrr á árinu kynnti Stefán Eiríksson niðurstöður mælinga fyrir árið 2025.

Auglýsing

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands eru karlar rúmlega 51 prósent þjóðarinnar og konur tæp 49 prósent. Einstaklingar skráðir sem „kynsegin/annað“ eru samkvæmt sömu tölum um 0,05 prósent mannfjöldans, alls 199 einstaklingar.

Fjórfalt til sexfalt hærra hlutfall í dagskrá

Í samantekt RÚV kemur fram að í almennri dagskrá utan frétta voru um 53 prósent viðmælenda eða þátttakenda karlar, 46,5 prósent konur og 0,3 prósent skráð sem kynsegin/annað.

Í fréttum og fréttatengdu efni var hlutfallið um 56 prósent karlar, 43,5 prósent konur og 0,2 prósent kynsegin/annað.

Miðað við mannfjöldatölur Hagstofunnar er hlutfall kynsegin einstaklinga því hærra í dagskrá RÚV en í þjóðskráðum mannfjölda. Í dagskrá utan frétta er hlutfallið um sexfalt hærra en samkvæmt mannfjöldatölum, en um fjórfalt hærra í fréttum og fréttatengdu efni.

Ekki fjallað um ástæður mismunarins

Ekki kemur fram í fundargögnum stjórnar hvort sérstaklega hafi verið rætt um ástæður þessa munar eða hvort spurningar hafi verið lagðar fyrir útvarpsstjóra um niðurstöðurnar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing