Sænska ríkissjónvarpið SVT falsaði ræðu Trump

BBC er ekki eini ríkisfréttamiðillinn sem hefur verið staðinn að verki við að falsa ræðu Trump. Nú er komið í ljós að Sænska ríkisútvarpið (SVT) hefur einnig beitt sömu brögðum og BBC. Bandaríski fjölmiðilinn Newsweek greindi frá þessu.

Starfsmenn SVT klipptu til lykilatriði úr ræðu Trumps í Washington D.C. þann 6. janúar 2021. Það var einnig gert til þess að láta líta þannig út að Trump væri að hvetja stuðningsmenn sína til ofbeldis, í stað þess að kalla eftir friðsamlegum mótmælum.

Auglýsing

Málið er keimlíkt falsfréttaflutningi breska ríkissjónvarpsins BBC á sömu ræðu. BBC játaði að hafa gefið „villandi mynd“ á orðum Trumps og gefið til kynna að hann hefði beinlínis kallað eftir ofbeldisverkum.

BBC viðurkenndi sök

Samir Shah, formaður BBC, sendi jafnframt persónulegt bréf til Hvíta hússins þar sem hann bað Trump afsökunar á sögufölsuninni. Þá hefur Tim Davie, forstjóri BBC, og Deborah Turness yfirmaður fréttadeildar BBC sagt af sér eftir að upp komst um vinnubrögð BBC. Í því tilefni sagði Turness þó í yfirlýsingu að fréttadeild BBC er ekki hlutdræg og að fréttastofan sé sú vandaðasta í heiminum.

BBC og SVT eru bæði ríkismiðlar líkt og Ríkisútvarpið og vekur þetta mál upp áleitnar spurningar um hvert er raunverulegt hlutverk þessara miðla. Hver er tilgangurinn með því að ríkið sé að  reka ríkisfréttastofu og þrengja þar með að frjálsum fjölmiðlum ef það er ekki að birta hlutlausar fréttir? Gamlir fréttatímar hjá Ríkisútvarpinu eru ekki aðgengilegir á netinu þannig að ekki er hægt að leita af sér allan grun um að Ríkisútvarpið hafi ekki beitt sömu vinnubrögðum og beitt var hjá bæði Sænska og Breska ríkisútvarpinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing