Pétur Eggerz, aðgerðasinni, sakar Guðlaug Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherra, um alvarleg brot gegn íslenskum hagsmunum og gengur svo langt að kalla þau landráð.
Þetta kemur fram í myndbandi hans á Facebook þar sem hann fullyrðir að nýr varnarsamningur við Bandaríkin hafi verið undirritaður árið 2017 án vitundar Alþingis og íslensks almennings.
Samkvæmt Pétri fór Guðlaugur Þór á bakvið Alþingi er hann fór á fund með fulltrúum bandarískra stjórnvalda, þar sem skrifað var undir nýjan varnarsamning.
Hann segir að samningnum hafi verið haldið leyndum, bæði fyrir Alþingi og almenningi, og að engin opinber umfjöllun hafi átt sér stað hér á landi.
Samningurinn ekki ræddur á Alþingi
Pétur vitnar í fréttaflutning sem segir að samningurinn hafi verið undirritaður árið 2017 án þess að hann hafi verið ræddur á Alþingi eða í utanríkismálanefnd.
Þá hafi hann hvorki verið birtur í Stjórnartíðindum né kynntur opinberlega á Íslandi.
Samkvæmt því sem fram kemur hafi samningurinn einungis verið aðgengilegur hjá bandarískum stjórnvöldum.
Pétur segir þetta grafalvarlegt og telur slíka leynd brjóta gegn lýðræðinu.
Að hans mati hafi Alþingi verið sniðgengið með öllu.
Segir samninginn veita Bandaríkjunum víðtækar heimildir
Pétur heldur því jafnframt fram að samningurinn veiti Bandaríkjunum fulla heimild til að koma sér fyrir hvar sem er á Íslandi, hvenær sem er, og setja þar upp hernaðaraðstöðu.
Hann segir að Ísland geti þannig orðið vettvangur hernaðaraðgerða sem ekki tengist beint vörnum landsins, heldur hagsmunum Bandaríkjanna annars staðar, meðal annars í tengslum við Grænland.
Að hans sögn er það sérstaklega alvarlegt að samningurinn firri Bandaríkin allri ábyrgð ef tjón verður hér á landi.
Hann nefnir sem dæmi sprengingar, innviðatjón eða annað tjón sem geti fylgt hernaðarumsvifum, og segir að í slíkum tilvikum myndu Bandaríkin ekki bera neina fjárhagslega né lagalega ábyrgð, heldur fellur hún alfarið á Ísland.
„Raunveruleg landráð“
Pétur segir þetta vera „raunverulegt landráð“ og telur að með samningnum hafi íslensk stjórnvöld í raun framselt fullveldi landsins.
Hann fullyrðir að þetta skýri hvers vegna Ísland standi ekki með öðrum Evrópuríkjum, á borð við Noreg, Danmörku, Svíþjóð, England og Þýskaland, í deilum tengdum mögulegum verndartollum Bandaríkjanna vegna Grænlands.
Að hans mati sé ástæðan sú að Ísland sé í raun orðið háð Bandaríkjunum eftir undirritun samningsins.
Hann kennir Guðlaugi Þór alfarið um og segir hann hafa farið gegn Alþingi og íslensku þjóðinni með þessum hætti.