Prófkjör Samfylkingarinnar fór fram um helgina.
Heiðu Björgu Hilmisdóttur var hafnað, afgerandi.
Undrun má sæta ef hún tekur sæti á listanum eftir þessa útreið.
Menn vilja ekki starfskrafta hennar- skýr skilaboð.
Ef Heiða Björg Hilmisdóttir tekur ekki sæti verða hrókeringar.
VEGNA KYNJAKVÓTA.
Tvíkynjahyggjan ræður.
Það verða að vera þrjár KONUR og þrír KARLMENN í sex efstu sætunum.
Vegna tvíkynjahyggunnar víkja karlmenn sem eru ofar á lista, en voru samt valdir framyfir konur í neðri sætum.
Samfylkingin trúir ekki eigin trúarbrögðum, að kynin sé mörg og að til séu kynlausir menn.
Það eru konur og karlar sem að sjálfssögðu skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Trúarbrögðin sem Samfylkingarfólk vill að við hin trúum stendur á brauðfótum, enda hafa menn séð hvers konar fantasía er á ferðinni.
Samfylkingin styrkir sannleikann, kynin eru tvö.
Helga Dögg Sverrisdóttir