Samtök skattgreiðenda hafa sent lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ODIHR, formlegt erindi vegna upplýsinga sem íslensk stjórnvöld hafa birt um mögulegan kostnað Íslands af aðild að Evrópusambandinu.
Erindið er dagsett 14. ágúst og sent í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju.
Í bréfinu segja Samtök skattgreiðenda að kostnaðartölur utanríkisráðuneytisins séu settar fram án fullnægjandi heimilda, sýni aðeins aðra hlið málsins og vanmeti mögulegan kostnað Íslands verulega. Samtökin óska eftir að ODIHR taki athugasemdirnar til skoðunar við eftirlit sitt með þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Opinberar upplýsingar segja 10-15 milljarða
Í erindinu er vísað til upplýsinga sem utanríkisráðuneytið birti í júní um mögulegan kostnað Íslands af ESB-aðild.
Þar er nettóframlag Íslands til sambandsins metið á um 10-15 milljarða króna á ári. Í minnisblaði ráðuneytisins til utanríkismálanefndar Alþingis var jafnframt byggt á þeirri forsendu að nettóframlag Finnlands til ESB næmi um 0,2-0,3 prósentum af landsframleiðslu.
Samtök skattgreiðenda gagnrýna hins vegar að ekki sé vísað til heimildar fyrir þeirri prósentutölu eða tekið fram hvaða ár liggi að baki henni.
Í meðfylgjandi minnisblaði samtakanna segir að gögn finnska fjármálaráðuneytisins sýni að nettóframlag Finnlands hafi sveiflast frá 0,11 prósentum upp í 0,38 prósent innan sama áratugar.
Segja brúttógreiðsluna geta orðið 43-53 milljarðar
Eitt helsta gagnrýnisatriði samtakanna er að í opinberri upplýsingagjöf komi ekki fram hversu há greiðsla Íslands til ESB yrði áður en styrkir og aðrar greiðslur frá sambandinu væru dregnar frá.
Samkvæmt útreikningum Samtaka skattgreiðenda gæti árleg brúttógreiðsla Íslands til ESB numið 43–53 milljörðum króna, með miðgildi um 47 milljarða króna.
Það samsvarar um einu prósenti af landsframleiðslu og um 146 þúsund krónum á hvern íbúa á ári miðað við miðgildið.
Að teknu tilliti til áætlaðra styrkja frá ESB og kostnaðar sem félli niður við aðild meta samtökin nettókostnaðinn á 23-44 milljarða króna á ári, með miðgildi um 34 milljarða króna.
Miðgildið er þannig meira en tvöfalt efri mörk þeirrar 10-15 milljarða nettótölu sem stjórnvöld hafa birt, og jafnvel lægri mörk mats samtakanna, 23 milljarðar, eru talsvert yfir efri mörkum opinbera matsins.
Fimm atriði gagnrýnd
Í erindinu til ODIHR eru fimm atriði sérstaklega dregin fram.
Í fyrsta lagi segja samtökin að lykilforsenda opinbera matsins, um 0,2-0,3 prósenta nettóframlag Finnlands, sé birt án heimildar og án tilgreinds viðmiðunarárrs.
Í öðru lagi sé brúttógreiðslan sjálf aldrei sýnd. Kjósendur fái þannig upplýsingar um nettóstöðu án þess að sjá hversu mikið fé færi fyrst frá Íslandi til sameiginlegs sjóðs ESB.
Í þriðja lagi benda samtökin á að árið 2024 hafi verið óvenjulágt framlagsár hjá ríkjum sambandsins. Í minnisblaðinu kemur meðal annars fram að bein framlög Finnlands hafi numið 0,73 prósentum af landsframleiðslu árið 2024, samanborið við 0,81 prósent árið 2025 og 1,02 prósent árið 2021.
Samtökin telja því að mat sem byggi mikið á árinu 2024 geti gefið of lága mynd af kostnaðinum.
Telja EES-frádráttinn tvítelja ávinning
Fjórða gagnrýnisatriðið snýr að þeim kostnaði vegna EES-samstarfsins sem stjórnvöld telja að myndi falla niður við ESB-aðild.
Samkvæmt Samtökum skattgreiðenda nema um 5,6 milljarðar af þeim átta milljörðum sem vísað hefur verið til þátttökugjöldum vegna áætlana á borð við Horizon Europe og Erasmus+.
Samtökin benda á að slík þátttaka skili jafnframt greiðslum og styrkjum til Íslands. Þar sem sambærilegar tekjur Finnlands séu þegar teknar með þegar nettóstaða þess gagnvart ESB er reiknuð telja samtökin að sami ávinningur sé í reynd talinn Íslandi til tekna tvisvar í opinbera matinu.
Gagnrýna heimild frá Evrópustraumum
Fimmta atriðið snýr að því hvaða utanaðkomandi mat er notað til stuðnings opinberu tölunum.
Í upplýsingum stjórnvalda er vísað til mats Evrópustrauma, sem hafa talað opinberlega fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Samtök skattgreiðenda gagnrýna að þess sé ekki getið í upplýsingum stjórnvalda og að ekkert sjálfstætt eða gagnrýnið mat sé sett fram samhliða, þrátt fyrir að önnur sjónarmið hafi komið fram í þinglegri meðferð málsins.
Þrjár mismunandi aðferðir gefa svipaða niðurstöðu
Samtök skattgreiðenda segja kostnaðarmatið hafa verið prófað með þremur aðskildum aðferðum.
Fyrsta aðferðin byggir á því að reglur ESB um fjármögnun sambandsins séu lagðar beint á íslenskar þjóðhagsstærðir.
Önnur aðferðin byggir á raunverulegum greiðslum Finnlands, sem stjórnvöld hafa sjálf notað sem viðmið.
Þriðja aðferðin byggir á greiðslum Króatíu, nýjasta aðildarríkis Evrópusambandsins.
Samkvæmt minnisblaðinu gefur finnska aðferðin niðurstöðu upp á 36,5-40,5 milljarða króna í beinum framlögum, en samanburður við Króatíu 40-52 milljarða króna.
Samtökin segja jafnframt að þegar reikniaðferð þeirra sé prófuð á tölum Króatíu fyrir árið 2025 fáist nákvæmlega sama niðurstaða og raunveruleg heildargreiðsla landsins það ár, 788,2 milljónir evra.
Tolltekjur færu að stórum hluta til Brussel
Í minnisblaðinu er einnig tekið tillit til tolltekna.
Þar segir að íslenska ríkið hafi haft um 7,6 milljarða króna í tolltekjur árið 2025. Við ESB-aðild færu þrír fjórðu hlutar tolltekna til sambandsins samkvæmt gildandi reglum.
Að auki þyrfti Ísland að taka upp sameiginlega ytri tollskrá ESB, sem gæti meðal annars leitt til nýrra tolla á vörur sem nú eru tollfrjálsar hér á landi.
Samtökin áætla að heildartollgreiðslur til ESB gætu þannig numið um 7-8,4 milljörðum króna á ári.
Reikningurinn gæti hækkað eftir 2028
Í minnisblaðinu er jafnframt fjallað um þróunina eftir árið 2028.
Þá hefjast endurgreiðslur vegna viðreisnarsjóðs Evrópusambandsins, NGEU, sem var stofnaður í kjölfar kórónuveirufaraldursins.
Samtök skattgreiðenda áætla að hlutdeild Íslands í þeim greiðslum gæti numið um 6-8 milljörðum króna á ári ef Ísland væri orðið aðildarríki.
Þau benda á að Ísland hafi ekki fengið greiðslur úr sjóðnum, þar sem fjármununum var úthlutað áður en hugsanleg aðild Íslands kæmi til.
Í minnisblaðinu er einnig fjallað um tillögu framkvæmdastjórnar ESB að næsta sjö ára fjárlagaramma sambandsins. Samtökin taka skýrt fram að sú tillaga hafi ekki verið samþykkt og þurfi meðal annars samþykki aðildarríkjanna.
Taka ekki afstöðu til ESB-aðildar í erindinu
Í bréfinu til ODIHR leggja Samtök skattgreiðenda áherslu á að þau séu ekki að óska eftir því að ÖSE taki afstöðu til þess hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið.
Erindið snúi að upplýsingagjöf stjórnvalda til kjósenda fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Samtökin segja að ráðuneytið sem beri ábyrgð á að upplýsa almenning sé að dreifa kostnaðartölum sem séu án fullnægjandi heimilda, einhliða og verulega vanmetnar, og að eina utanaðkomandi matið sem stjórnvöld vísi til komi frá aðila sem taki þátt í umræðunni fyrir aðild Íslands að ESB.
Þau vísa jafnframt til þess að ODIHR hafi sjálft bent á hlutleysi og nægjanleika opinberra kjósendaupplýsinga sem eitt þeirra atriða sem skipti máli við mat á framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Samtök skattgreiðenda óska eftir að athugasemdir þeirra verði teknar með í reikninginn við eftirlit ODIHR með atkvæðagreiðslunni.
Bréfið er undirritað af Skafta Harðarsyni, Arnari Arinbjarnarsyni og Róberti Bragasyni fyrir hönd stjórnar Samtaka skattgreiðenda. Með erindinu fylgir sjö blaðsíðna minnisblað þar sem útreikningar samtakanna og heimildir eru sundurliðaðar.