Samtökin Drenglyndi kvarta til fjölmiðlanefndar vegna „ólétts karlmanns“

Foreldar og kennarar sem mynda hóp Drenglyndis eru ósáttir við umfjöllun fjölmiðlanna mbl og vísis um ,,óléttan“ karlmann. Hvert mannsbarn veit að karlmaður getur ekki gengið með barn.

Drenglyndi telur fréttaflutninginn stangast á við staðreyndir líffræðinnar sem allir þekkja. Kvörtunargrundvöllur er í máli þessu aðallega í 11. gr. fjölmiðlalaga nr. 38/2011 og er þess farið á leit að fjölmiðlanefnd taki umkvörtunarefnið til efnislegrar meðferðar og úrlausnar og tilgreindar umfjallanir og ummæli sem ætluð brot gegn fjölmiðlalögum.

Auglýsing

Drenglyndi telur tilvitnaða umfjöllun og birtingu ummæla ganga í berhögg við bæði líffræðilegan raunveruleika og náttúrulegar staðreyndir svo og lög og landsrétt. Er það vitanleg fyrst og fremst sökum þess að þar teljast bornar á borð rangar og villandi upplýsingar m.a. fyrir börn sem lesendur umgetinna miðla. Verður í því samhengi að hafa hugfast að fjölmiðlar eða fjölmiðlaveitur líkt og að framan eru greinir eru aðgengilegar almenningi, þar með talið börnum.

Mannréttindadómstóllinn

Tveir tiltölulega nýlegir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu er varða umkvörtunarefni það sem hér hefur verið reifað, frá 4. apríl 2023, hafa í þessu samhengi umtalsvert gildi og þýðingu að mati Drenglyndi.

Málin bárust eftir tvo dóma í Þýskalandi, frá hlutaðeigandi málsaðilum en þeir töldu þýska ríkið hafa brotið gegn 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um réttinn til friðhelgi einkalífs, með tilgreindum dómsniðursstöðum.

Þýski dómstóllinn lagði til grundvallar og sló því föstu að sá maður er leggur til sæði er faðir og bæri opinberlega að skrá sem slíkan (sbr. fyrrnefnda málið). Einnig var á því byggt að kona sem gengur með barn og fæðir það er móðir þess og hana bæri sömuleiðis að skrá sem slíka (sbr. síðargreinda málið).

Mannréttindadómstólinn tók undir þýsku dómana og lagði áherslu á að vega þurfi mannréttindi þau sem á togast hvort á móti öðru í málum sem þessum. Varðandi úrlausnarefni af tilgreindum toga sló dómstóllinn því síðan föstu að réttur barnsins til að þekkja líffræðilegan bakgrunn sinn og uppruna teldist rétthærri og þannig ganga framar rétti og óskum foreldra til að fá viðurkenningu á líffræðilegu hlutverki sem þeir aðeins óska sér. Var því ekki talið að Þýskaland hefði brotið gegn einkalífs- og friðhelgi málsaðila sem foreldra samkvæmt þar að lútandi 8. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. í því samhengi 71. gr. stjórnarskrárinnar sem verndar m.a. þess háttar hagsmuni einnig. Þessar forsendur og niðurstaða MDE eru ótvírætt í samræmi við gildandi íslensk lög og barnarétt, þá ekki síst það grundvallarmarkmið að hafa beri það í fyrirrúmi sem álíta má barni fyrir bestu sbr. nánar hér á eftir.

MDE lýkur dómum á orðunum ,,motherhood and fatherhood, as legal categories, were not interchangeable and were to be distinguished both by the preconditions attached to their respective justification and by the legal consequences which arose therefrom.”

Ábyrgð blaðamanna og fjölmiðla

Það er mat Drenglydis að krafan um hlutlægni feli m.a. í sér að staðhæfingar sem settar eru fram skulu vera réttar og að allar nauðsynlegar upplýsingar komi fram. Er vísað til m.a. faglegrar blaða- og fréttamennsku um að leitað sé margra heimilda og heimildarmanna til að sannreyna staðreyndir áður en upplýsingar eru birtar.  Enn fremur er síðan í 4. mgr. 28. gr. fjölmiðlalaga svo fyrir mælt að fjölmiðlaveitur (eins og þær er kvartað er undan í máli þessu) skuli kappkosta að efni sem haft getur skaðvænleg áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðilegan þroska barna sé þeim hvorki aðgengilegt né því miðlað til þeirra.

Það eru þannig ekki einvörðungu foreldrar og opinberar stofnanir sem bera verndarskyldur og velferðarábyrgð viðvíkjandi börnum heldur er þar einnig um m.a. fjölmiðla að ræða samkvæmt framanröktu. Að bera fram ósannindi, líkt og að karlmaður eigi von á barni stenst hvorki raunveruleika né sannleika og til þess gert til að rugla börn í rýminu og sá fræjum ósanninda í huga þeirra.

F.h. Drenglyndis

Helga Dögg Sverrisdóttir

Ina Steinke

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing