Sannleikurinn á bak við axarmyndbandið umdeilda loksins kominn í ljós

Búlgörsk systkini hafa verið dæmd fyrir árás á tvær skólastúlkur í Dundee í Skotlandi í máli sem vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir að myndband af annarri stúlkunni með öxi fór um allt á samfélagsmiðlum.

Nútíminn fjallaði um málið á sínum tíma.

14 ára stúlka handtekin í Skotlandi fyrir hnífaburð – Segist hafa verið að verja sig og vinkonur sínar fyrir árásarmanni

Auglýsing

Ilia Belov, 22 ára, var sakfelldur fyrir að hafa haft uppi kynferðisleg ummæli við hóp stúlkna á aldrinum 12 til 14 ára áður en hann greip eina þeirra og hrinti henni í jörðina. Systir hans, Nadjedzha Belova, 20 ára, hafði áður játað að hafa ráðist á 13 ára stúlku með því að toga í hárið á henni, hrinda henni í jörðina og slá hana í höfuðið.

Fyrir dómi kom fram að Belov hefði verið með kynferðislega tilburði við stúlkurnar.

Samkvæmt niðurstöðu dómsins hófust átökin eftir að ein stúlknanna brást við tilburðunum og kallaði hann „perra“. Belov hringdi í systur sína sem kom á vettvang. Í kjölfarið réðst hún á stúlkurnar.

Dómari hafnaði framburði Belovs

Belov neitaði sök og hélt því fram að stúlkurnar hefðu gert gys að honum og að ein þeirra hefði kallað hann „andskotans innflytjanda“. Hann sagðist einnig hafa óttast að ein stúlknanna væri vopnuð.

Dómarinn hafnaði þeirri skýringu og sagði frásögn Belovs hvorki trúverðuga né áreiðanlega og sagði augljóst að hann hefði átt upptökin að átökunum með tilburðum sínum gagnvart stúlkunum.

Hann sagði jafnframt að vitnisburður stúlknanna hefði verið skýr og sannfærandi.

Myndbandið gerði allt vitlaust á netinu

Eftir að annarri þeirra var hrint í jörðina dró hún upp öxi og hníf. Belov tók þá upp myndband af atvikinu og varð það eitt umtalaðasta myndband Bretlands.

Myndbandið vakti athygli víða um heim og var Elon Musk einn af þeim sem deildi myndbandinu. Umræðan snerist þá að miklu leyti um vopnin sem stúlkan var með á sér frekar en atburðina sem áttu sér stað áður en myndbandið hófst.

Móðir stúlknanna sagði að dómsmálið hefði verið erfitt fyrir fjölskylduna.

„Þær sögðu sannleikann frá upphafi en enginn trúði þeim,“ sagði hún við breska fjölmiðla.

Hún sagði jafnframt að fólk hefði verið svo upptekið af öxinni að fáir hefðu hlustað á frásögn stúlknanna af því sem gerðist áður.

Varð að pólitísku hitamáli

Málið varð einnig að umdeildu pólitísku máli í Skotlandi. Fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands, Humza Yousaf, gagnrýndi á sínum tíma þá aðila sem héldu því fram að stúlkurnar hefðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni og hafnaði þeim fullyrðingum.

Stuðningsmenn stúlknanna segja nú að niðurstaða dómsins sýni að þær hafi sagt sannleikann frá upphafi þegar þær greindu frá kynferðislegri áreitni Belovs áður en átökin brutust út.

Refsing systkynanna verður ákveðin á næstu vikum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing