Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut

Sautján ára piltur lést í alvarlegu umferðarslysi á Miklubraut í Reykjavík í gærkvöld. Pilturinn var farþegi í bifreið sem ekið var austur Miklubraut þegar slysið varð, á móts við hús Hjálpræðishersins.

Ökumaður bifreiðarinnar, einnig sautján ára, slasaðist töluvert í slysinu. Að sögn lögreglu er líðan hans eftir atvikum.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka nú tildrög slyssins. Engar frekari upplýsingar hafa verið veittar að svo stöddu.

Auglýsing

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing