Segir að nú þurfi að beita siðareglum þingmanna eða hreinlega fella þær úr gildi

Blaðamaðurinn Stefán Einar Stefánsson fjallar á Facebook um ummæli Þórunnar Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis.

Hann segir ljóst að forsetinn hafi brotið siðareglur með því að vísa til þingmanna stjórnarandstöðunnar sem „helvítis, djöfulsins, andskotans pakk“ og að málið sé orðið alvarlegur prófsteinn á siðareglur þingsins.

Segir Alþingi þurfa að taka afstöðu – eða fella reglurnar úr gildi

Auglýsing

Í pistli sínum spyr Stefán hvort reglurnar gildi aðeins um minnihlutann en ekki meirihlutann, eða um óbreytta þingmenn en ekki þá sem gegna æðstu stöðum á þingi.

„Annað hvort verður úr því skorið með formlegum hætti hvort brotið hafi verið gegn reglunum í þessu máli, eða þá að þingið skundi til fundar og afnemi þær með öllu,“ skrifar hann og bætir við að það væri „helvítis, djöfulsins, andskotans bömmer“ ef siðareglurnar væru eingöngu túlkaðar í eina átt.

Stefán gagnrýnir jafnframt að ekkert heyrist frá helstu röddum vinstri vængsins um málið.

„Má þar helst minnast Vilhjálms Árnasonar, Henrys Alexanders Henryssonar, Jóns Ólafssonar, og já, Eiríks Rögnvaldssonar – hann er svo frábær alltaf hreint og samkvæmur sjálfum sér,“ skrifar hann.

Forseti Alþingis harmar orðbragðið í morgunfundarstjórn

Ummæli Stefáns tengjast frétt á mbl.is þar sem fjallað er um harða umræðu á Alþingi í morgun, þar sem þingmenn úr hinum ýmsu flokkum voru með hvöss orðaskipti.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, gagnrýndi bæði ásakanir þingmanna um lögbrot og líkingar við „rakka í bandi“, sem Grétar Már Jónsson, varaþingmaður Flokks fólksins, hafði notað um stjórnarandstöðuna.

Þórunn sagðist harma hve þung orð hefðu fallið.

„Mér þykir mjög miður þegar þung orð falla í þingsal. Á það bæði við um ásakanir um lögbrot og þegar þingmönnum er líkt við rakka í bandi. Ég vona að það verði í fyrsta og síðasta sinn sem þessi forseti þarf að hlusta á slíka umræðu hér,“ sagði hún.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing