Segir allt benda til að í heildarfjölda atkvæða hafi Heiða Björg lent í sjötta sæti í kosningum Samfylkingarinnar

Einar Steingrímsson, stærðfræðingur, setur stórt spurningarmerki við úrvinnslu og birtingu niðurstaðna úr prófkjöri Samfylkingarinnar sem fram fór í gær.

Í færslu á Facebook segir hann að samkvæmt heimildum sínum hafi Heiða Björg Hilmisdóttir í raun lent í sjötta sæti þegar heildaratkvæði eru lögð saman, þrátt fyrir að annað hafi verið gefið í skyn opinberlega.

Auglýsing

Einar segir slíkt vera fréttnæmt, en telur að fjölmiðlar hafi ekki sinnt rannsókn á málinu af nægilegri alvöru.

Gagnrýnir skort á upplýsingagjöf

Í færslu sinni gagnrýnir Einar einnig Samfylkinguna yrir að hafa enn ekki birt upplýsingar um úrslit prófkjörsins á vef sínum.

Hann segir það vekja furðu að flokkurinn hafi ekki upplýst flokksmenn og almenning um heildarniðurstöður.

Einar bendir á að kjörstjórn hafi valið að birta tilteknar upplýsingar, til dæmis hversu mörg atkvæði tiltekinn frambjóðandi hafi vantað upp á til að ná ákveðnu sæti, á meðan heildartölur hafi ekki verið gerðar aðgengilegar.

Að hans mati ættu allar tölur að liggja fyrir, bæði til að tryggja gagnsæi og til að forðast tortryggni um niðurstöðurnar.

Vangaveltur um mögulegt bandalag

Í færslunni veltir Einar einnig upp þeirri spurningu hvort ákveðnir frambjóðendur hafi verið í einhvers konar óformlegu bandalagi í flokksvalinu.

Hann nefnir þar sérstaklega nöfn nokkurra frambjóðenda, án þess þó að fullyrða slíkt.

Hann tekur skýrt fram að hann geti ekki borið fulla ábyrgð á því að allar tölur séu réttar, þar sem hann hafi sjálfur sett þær saman út frá þeim gögnum sem hann hafi haft aðgang að.

Þrátt fyrir það segist hann telja að taflan sem hann birtir sýni heildarútkomuna í flokksvali Samfylkingarinnar, þar sem fram komi atkvæði hvers frambjóðanda í hvert sæti og samanlagður heildarfjöldi.

Nútíminn hefur óskað eftir tölum frá Samfylkingunni og mun birta þær ef og þegar þær berast.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing