Segir Blaðamannafélag Íslands hafa styrkt Aðalstein um 1,5 milljónir króna til að fara í mál við bloggara

Stjórn Blaðamannafélags Íslands samþykkti á stjórnarfundi í lok september að veita Aðalsteini Kjartanssyni, blaðamanni á Heimildinni og fyrrverandi varaformanni félagsins, 1,5 milljónir króna í styrk vegna málskostnaðar.

Þetta fullyrðir Páll Vilhjálmsson í nýlegum pistli á bloggsíðu sinni.

Auglýsing

Styrkurinn tengist dómsmáli sem Aðalsteinn tapaði í Landsrétti gegn bloggara, Páli Vilhjálmssyni.

Aðalsteinn sat stjórnarfundinn en fór út úr salnum áður en atkvæðagreiðslan fór fram.

Samþykktin felur í sér að fagfélag blaðamanna greiðir hluta málskostnaðar í málaferlum sem Páll segir vera þöggunarmál.

Bakgrunnur málsins

Það sem gerir málið sérlega áhugavert er að það var Aðalsteinn sem höfðaði mál gegn Páli Vilhjálmssyni en ekki öfugt.

Þetta geriðist eftir að Páll fjallaði ítrekað um meint tengsl blaðamanna við svokallað byrlunar og símamál Páls skipstjóra Steingrímssonar.

Í bloggfærslum sínum lýsti Páll því að blaðamenn úr svokölluðum RSK miðlum, RÚV, Stundinni og Kjarnanum, hefðu haft beina eða óbeina aðkomu að málinu, meðal annars tengt meintum gagnastuldi og ólöglegri afritun síma.

Blaðamenn töldu umfjöllunina ólögmæta og stefndu Páli.

Fyrst stefndu Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson Páli, en töpuðu málinu í Landsrétti.

Aðalsteinn stefndi síðar og krafðist miskabóta og málskostnaðar.

Landsréttur sýknaði Pál og Hæstiréttur hafnaði áfrýjunarbeiðni.

Gagnrýni á BÍ fyrir að styrkja málsóknina

Páll heldur því fram að styrkur BÍ sé skref til að hefta tjáningarfrelsi og að fagfélag blaðamanna sé að styðja mál sem feli í sér að þagga niður í gagnrýninni umræðu.

Hann segir að almennt hefðu slík samtök átt að standa vörð um tjáningarfrelsi en hér sé gerð undantekning í þágu eigin félagsmanns sem sótti skaðabætur gegn bloggara.

Úrdrættir úr stefnu Aðalsteins

Í bloggi sínu birtir Páll fjölda tilvitnana úr stefnu Aðalsteins, sem hann segir Landsrétt hafa úrskurðað að falli undir verndað tjáningarfrelsi.

Þar eru meðal annars tilvitnanir um meint tengsl blaðamanna Heimildarinnar og RÚV við undirbúning og framkvæmd byrlunar, stuld á síma og eyðingu gagna.

Tilvitnanirnar ná meðal annars til frásagna um:

  • Að blaðamenn hafi haft beina aðkomu að byrlun og gagnastuldi.
  • Að Aðalsteinn hafi verið sendur af RÚV yfir á Stundina til að vinna úr stolnum gögnum.
  • Að fimm blaðamenn hefðu átt yfir höfði sér ákærur vegna málsins.
  • Að tölvupóstum og öðrum sönnunargögnum hafi verið eytt.
  • Að andlega veik kona hafi verið notuð til að framkvæma byrlunina.

Landsréttur taldi að Páll hefði mátt setja þessar fullyrðingar fram í samhengi opinberrar umræðu og sýknaði hann.

Páll segir styrkinn merki um að fagfélag blaðamanna sé farið að taka pólitíska afstöðu í deilum um fréttaflutning, með þeim afleiðingum að traust til fjölmiðla haldi áfram að dala.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing