Segir gjöld og skatta éta alltof mikið úr litlum ferðaþjónusturekstri – „Hvenær verður nóg nóg?“

Eigandi lítils fyrirtækis í ferðaþjónustu segir opinber gjöld hafa lagst hvert ofan á annað frá því reksturinn hófst árið 2017. Hann áætlar að leyfis-, farþega-, bílastæða-, aksturs- og veggjöld geti nú numið rúmlega 1,7 milljónum króna á 140 daga ferðatímabili.

Færsla hans í Facebook hópnum Bakland Ferðaþjónustunnar hefur vakið töluverða umræðu. Einhverjir segja þetta dæmið um hátt verðlag í íslenskri ferðaþjónustu en aðrir benda á að upplýsingar um tekjur, sætanýtingu og lækkun eldsneytisgjalda þurfi einnig að liggja fyrir.

Auglýsing

Byrjaði með einn sex manna bíl

Að sögn mannsins hóf fyrirtækið starfsemi árið 2017 með einum sex manna bíl. Farþegar eru sóttir við Jökulsárlón og ekið með þá að jökli.

Að sögn eigandans var eina sérstaka gjaldið í upphafi 50 þúsund króna árgjald fyrir atvinnuleyfi innan Vatnajökulsþjóðgarðs.

Síðan hafi bæst við 400 króna gjald fyrir hvern farþega sem farið er með að jöklinum og leyfisgjaldið hækkað í 100 þúsund krónur.

Bílastæðagjald var jafnframt tekið upp við Jökulsárlón. Samkvæmt núgildandi gjaldskrá kostar 1.440 krónur að leggja þar sex til níu manna fólksbifreið í einn dag.

Nýtt veggjald bættist við í september

Kílómetragjald á öll ökutæki tók gildi um síðustu áramót og nemur nú 6,95 krónum á hvern ekinn kílómetra fyrir bíla undir 3,5 tonnum.

Frá 1. september þarf fyrirtækið einnig að greiða fyrir akstur um nýja Hornafjarðarveginn. Stök ferð fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum kostar 1.500 krónur en hámarksgjaldið er 18.750 krónur á hvern bíl á mánuði.

Vegagerðin segir gjaldinu ætlað að standa undir hluta af byggingarkostnaði, rekstri og viðhaldi vegarins. Nýi vegurinn styttir Hringveginn um tólf kílómetra.

Bent á lækkun eldsneytisgjalda

Í umræðunni var spurt hvort sanngjarnt væri að telja kílómetragjaldið að fullu með án þess að draga frá lækkun eldsneytisverðs sem átti að koma á móti.

Samhliða upptöku kílómetragjaldsins voru eldri bensín- og olíugjöld felld niður. Raunveruleg áhrif kerfisbreytingarinnar ráðast því meðal annars af eyðslu og akstri hvers bíls.

Rekstraraðilinn svaraði að kílómetragjaldið væri engu að síður enn ein ný tegund gjaldtöku sem hefði bæst við frá því fyrirtækið tók til starfa. Hann benti einnig á að talsverður munur væri á eldsneytisverði á Hornafirði og í Reykjavík.

Rúmlega 1,7 milljónir yfir tímabilið

Dóttir eigandans er nú farin að keyra með honum á öðrum sex manna bíl. Við það hafa tekjurnar aukist en einnig kílómetragjaldið, farþegagjaldið og bílastæðakostnaðurinn.

Jepparnir eru geymdir nálægt Jökulsárlóni og feðginin aka þangað á fólksbíl frá Höfn. Það dregur verulega úr kostnaði, en samanlagður akstur bílanna þriggja er engu að síður sagður um 260 kílómetrar á dag, sex daga vikunnar.

Eigandinn áætlar að gjöldin nemi samanlagt um tólf þúsund krónum á hvern starfsdag. Yfir 140 daga tímabil geri það rúmlega 1,7 milljónir króna.

Ofan á þetta bætast virðisaukaskattur, tekjuskattur, launatengd gjöld og annar rekstrarkostnaður.

Sætið kostar 18 þúsund krónur

Einn þátttakandi í umræðunni reiknaði út að miðað við níu farþega á dag næmu gjöldin um 1.350 krónum á hvern farþega. Spurt var hvað sætið kostaði og hversu stór hluti teknanna rynni á endanum til hins opinbera.

Rekstraraðilinn svaraði að sætið kostaði 18 þúsund krónur. Hann sagðist jafnframt bjóða ódýrasta sætið af þeim 31 fyrirtæki sem hefðu atvinnuleyfi innan þjóðgarðsins.

Annar þátttakandi sagði upplýsingar um tekjurnar vanta til að hægt væri að fá heildarmyndina. Í umræðunni kom fram að ferðum væri fækkað niður í eina á dag yfir myrkasta tímann, frá 10. desember til 10. janúar, en reksturinn dygði fjölskyldunni vel.

„Svo kvartar landinn yfir verðlagningu“

Fleiri þátttakendur gagnrýndu umfang gjaldtökunnar. Einn spurði hvort verið væri að réttlæta þetta okur frá ríkinu þegar þjónustan sem fengist í staðinn væri að hans mati ófullnægjandi.

Annar sagði rekstraraðila fyrst vinna fyrir báknið og síðan sjálfa sig.

„Svo kvartar landinn yfir verðlagningu,“ skrifaði hann.

Eigandi fyrirtækisins benti einnig á að gjaldtakan næði lengra en til fyrirtækisins sjálfs. Sex farþegar gætu verið þrjú pör sem kæmu að Jökulsárlóni á þremur bílaleigubílum og greiddu hvert sitt bílastæðagjald áður en þau færu í ferðina.

„Ofan á þetta kemur svo að sjálfsögðu virðisaukaskattur á fyrirtækið og skattar og launatengd gjöld á laun ökumanna og allur almennur annar rekstrarkostnaður,“ skrifar hann.

„Hvenær verður nóg nóg?“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing