Segir hættulega menn hafa komið inn í landið í skjóli fjölskyldusameiningar

Fyrrverandi vararíkissaksóknari, Helgi Magnús Gunnarsson, var gestur í Spjallinu með Frosta Logasyni, þar sem hann fjallaði ítarlega um störf sín innan ákæruvaldsins, umdeild ummæli sín, og áhyggjur af þróun mála í Evrópu vegna fjölgunar innflytjenda frá múslímskum ríkjum.

Helgi sagði að Vesturlönd væru „sofandi gagnvart menningarbyltingu“ sem að hans mati eigi sér stað í skjóli trúfrelsis og mannúðar.

Auglýsing

„I will kill you“ – segir frá átökum við innflytjanda

Í þættinum lýsti Helgi atviki þar sem hann varð fyrir beinum hótunum af hálfu Mohamad Kourani.

„Þegar hann sá mig í dyrunum þá öskraði hann á mig: ‘I will kill you,’“ segir Helgi.

„Einhvern veginn var ég bara að vona að hann réðist á mig, svo ég gæti lumbrað á honum. Ég ætlaði bara að láta hann finna fyrir því,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið kominn með nóg af því sem hann kallar „djöfulsins kjaftæði“.

Helgi segir að eftir orðaskipti hafi lögregla fylgt manninum út úr húsinu.

Hættulegir menn komu til landsins gegnum fjölskyldusameiningu

„Ég fékk eftir áreiðanlegum heimildum þær upplýsingar,“ segir Helgi, „að þessi fjölskyldusameining sem þeir tóku þátt í hafi í raun byggst á því að, að því er virðist, að landamæravörðum í Egyptalandi hafi verið mútað til að koma fólki frá Gaza yfir landamærin. Þetta fólk kom svo hingað til lands í gegnum samning sem íslensk stjórnvöld höfðu fallist á.“

Þarna er Helgi Magnús að vísa í mál þar sem þrjár íslenskar konur fóru til Egyptalands árið 2024 til að sækja fjölskyldur frá Gasa.

Hann segir að í þeim hópi hafi verið einstaklingar sem ísraelskar öryggisstofnanir höfðu þegar varað við.

„Ísraelska leyniþjónustan fékk listann og hún varaði við 10–15 manns í hópnum,“ útskýrir hann. „Það var gefið í skyn að þeir tengdust hryðjuverkasamtökum eða öðrum öfgahópum. Þeir vita bókstaflega allt, jafnvel hvaða skónúmer þú notar, Ísraelska leyniþjónustan er sú öflugasta í heimi. Hún veit allt um þessa menn. Það er ekki einu sinni hægt að fá tannpínu án þess að þeir skrái það í tölvuna sína.“

Vísar til skýrslu lögreglunnar um brot

Helgi Magnús vísar í þættinum til skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá árinu 2019.

„Það var skýrsla um skipulagða brotastarfsemi. Þar kom fram að hópur múslimskra karla hefði komið hingað vegna þess að þeir voru ofsóttir fyrir kynhneigð sína í heimalandi sínu en svo voru þeir stuttu síðar farnir að brjóta kynferðislega gegn konum hér.“

Helgi bætir við að það hafi vakið athygli hans.
„Ég er ekki sérfræðingur í hinsegin fræðum, en mér fannst það ekki alveg samræmast þeirri ástæðu sem þeir gáfu upp fyrir hæli,“ segir hann.

„Þetta er ekki trúarspurning – þetta er menningarspurning“

Helgi gagnrýnir harðlega umburðarlyndi evrópskra stjórnvalda.

„Þeir sem halda að þetta snúist um trúarbrögð eru að misskilja þetta. Þetta er menningarbylting.“ 

Hann segir að „þegar menn leggjast á skeljarnar“ á ráðhústorginu í Kaupmannahöfn og halda risa bænastundir undir merki Íslam, þá sé það ekki trúarleg hógværð. Það sé það sama og þegar hundur merkir svæði sitt, yfirlýsing um yfirráð.

Hann segir að ef innflytjendur vilji aðlagast og virða mannréttindi Vesturlanda sé engin ástæða til að hafa áhyggjur.

„Ef fólk virðir réttindi kvenna, réttindi samkynhneigðra, trúfrelsi og tjáningarfrelsi, og viðurkennir að ríki og trú séu aðskilin, þá er allt í lagi. En þegar menn halda sig við sharía lög og segja að einu lögin sem gildi séu lög Múhameðs, þá er þetta ekki samrýmanlegt okkar gildum.“

„Þeir segja að tölfræðin sé rasísk“

Helgi segir að umræðan um þessi mál sé orðin svo pólitísk að jafnvel staðreyndir séu orðnar óþægilegar.

„Þú getur fundið fullt af fólki sem segir að tölfræði sé rasísk,“ segir hann. „En tölfræðin er tölfræðin. Það hafa verið framin rúmlega 47 þúsund hryðjuverk í heiminum af völdum islamista frá 11. september 2001. Við heyrum nær daglega um einhver ódæðisverk, menn stingandi, skjóta eða sprengja og öskra ‘Allahu Akbar’. En samt neitar fólk að tengja þetta trúarhugsjónum þeirra, það eru þeir sem eru að tengja þetta trúnni með slíkum yfirlýsingum.“

Helgi ítrekar þó í þættinum að hann geri ekki ráð fyrir að allir múslimar séu ábyrgir fyrir ofbeldi.

„Það er enginn að tala um að gera múslima ábyrga fyrir öllum morðum og nauðgunum sem framdir eru í nafni trúarinnar,“ segir hann. „En við verðum að geta rætt þessi mál án þess að vera stimpluð sem öfgafólk eða rasistar.“

„Við erum best í heimi – en alltaf vælandi“

Í lok viðtalsins víkur Helgi að því sem hann kallar „séríslenskt væl“.

Hann segir að Evrópa og Ísland hafi byggt upp samfélög meðbestu gildum heimsins.

„Við erum best í heimi í umhverfismálum, með 85% orku okkar úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Við erum fremst í jafnrétti kynjanna, og samt erum við alltaf að væla um að konur séu kúgaðar af einhverju feðraveldi. Hvaða djöfulsins væl er þetta?“

Hægt er að horfa á brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt horfa á allan þáttin geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing