Kolbeinn Stefánsson ,félagsfræðingur og dósent við Háskóla Íslands, segir mál Jason Arday, fyrrverandi prófessors við Cambridgeháskóla, sýna hvað geti gerst þegar pólitísk og hugmyndafræðileg sjónarmið fái meira vægi en hefðbundin akademísk gæðaviðmið.
Arday hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli í Bretlandi og var meðal annars kynntur sem yngsti svarti maðurinn til að verða prófessor við Cambridgeháskóla. Hann hefur jafnframt sagt frá óvenjulegu lífshlaupi og fjölmörgum afrekum.
Nú hafi hins vegar komið fram alvarlegar ásakanir um ritstuld í doktorsritgerð hans og jafnframt hafi ýmsar sögur sem hann hefur sagt af sjálfum sér verið dregnar í efa.
Segir afrekaskrána hafa verið „lygilega“
Kolbeinn rekur nokkur dæmi úr ævisögu og opinberri umfjöllun um Arday.
Arday hefur meðal annars sagst hafa farið til Suður Ameríku og Vestur Afríku á vegum WaterAid til að setja upp vatnsdælur. Kolbeinn segir WaterAid hafa hafnað því að slík ferð hafi átt sér stað og bent á að samtökin sendi ekki sjálfboðaliða með þeim hætti sem Arday lýsti.
Arday hefur einnig sagt frá miklum hlaupaafrekum, meðal annars að hafa hlaupið um 600 mílur frá Edinborg til Lundúna á sex dögum. Kolbeinn segir Arday síðar hafa skýrt frá því að ferðin hafi í raun tekið tólf daga, þar af sex hlaupadaga og sex hvíldardaga.
Þá hafi Arday sagst hafa safnað 5,5 milljónum punda til góðgerðarmála en síðar tekið fram að hann hefði ekki gert það einn og ekki getað greint nánar frá málinu vegna trúnaðarsamkomulags.
Kolbeinn nefnir einnig fullyrðingar Arday um hálfatvinnumennsku í knattspyrnu og snóker og segir ekki hafa tekist að finna gögn sem styðji þær með þeim hætti sem þær hafi verið settar fram.
Sagðist hafa verið barn í Seven Up!
Eitt sérkennilegasta dæmið sem Kolbeinn nefnir tengist bresku heimildarþáttunum Seven Up!.
Til sé upptaka þar sem Arday segist hafa verið eitt barnanna sem fylgst var með í þáttunum. Fyrstu börnin í þáttunum voru sjö ára árið 1964 en Arday fæddist um tveimur áratugum síðar.
Kolbeinn segir að þegar fjölmiðlar hafi spurt Arday út í málið hafi hann sagt að hann hefði átt við annað verkefni með sama nafni, sem upplýsingar virðist hins vegar ekki hafa fundist um.
Ritstuldur kjarni málsins
Alvarlegasti hluti málsins snýr þó að doktorsritgerð Arday.
Kolbeinn segir umfangsmikinn ritstuld hafa fundist í ritgerðinni og að Arday hafi ekki alfarið neitað ásökununum heldur meðal annars vísað til þess að hann hafi fengið slæma leiðsögn í doktorsnáminu.
Arday hafi jafnframt sagt að kynþáttafordómar og fordómar vegna einhverfu hafi haft áhrif á hvernig komið var fram við hann.
Kolbeinn gagnrýnir sérstaklega viðbrögð hluta fræðasamfélagsins við ásökununum og segir gagnrýni á Arday lengi hafa verið afgreidda sem árásir hægri manna eða kynþáttafordómar.
Arday hefur nú sagt starfi sínu við Cambridgeháskóla lausu.
Tengir málið við nýja skýrslu um háskólasamfélagið
Kolbeinn tengir mál Arday við skýrslu nefndar sem skipuð var að frumkvæði rektora Vanderbilt háskóla og Washington háskóla í St. Louis til að skoða hugmyndafræðilega slagsíðu í hugvísindum og félagsvísindum.
Samkvæmt umfjöllun Kolbeins er niðurstaða skýrslunnar sú að vísbendingar séu um að á ákveðnum sviðum geti hugmyndafræðileg sjónarmið haft áhrif á fræðilegt starf og jafnvel vegið þyngra en hefðbundin viðmið um gæði rannsókna.
Kolbeinn telur mál Arday vera dæmi um slíkan vanda.
Að hans mati hefði ferill Arday ekki getað þróast með þeim hætti sem raun varð á nema í umhverfi þar sem fólk hafi verið tregt til að spyrja gagnrýninna spurninga vegna þess hver Arday var og hvað hann táknaði.
„Arday var sigurganga fjölbreytileikans holdi klædd,“ skrifar Kolbeinn og segir að stór hluti fræðasamfélagsins hafi tekið ótrúlegum frásögnum hans gagnrýnislaust.
Segir Ísland ekki endilega undanskilið
Kolbeinn telur jafnframt ástæðu til að velta fyrir sér hvort sambærileg hugmyndafræðileg slagsíða geti verið til staðar í íslensku háskólasamfélagi.
Hann vísar meðal annars til yfirlýsingar sem nærri 400 einstaklingar í háskólasamfélaginu skrifuðu undir vegna stríðsins á Gaza.
Kolbeinn segist ekkert hafa við það að athuga að fræðimenn taki pólitíska afstöðu. Vandinn skapist hins vegar þegar fólk líti á pólitíska baráttu sem hluta af akademísku hlutverki sínu og hún fari að vega þyngra en þekkingarleit og miðlun hennar.
Að hans mati eru háskólar fjármagnaðir til að skapa og miðla þekkingu en ekki til að reka tiltekna pólitíska stefnu.