Samira Hosseini, írönsk kona með stöðu flóttamanns á Íslandi, var gestur í Spjallinu með Frosta Logasyni.
Þar lýsti hún ástandinu í Íran sem algeru neyðarástandi og sagði að samkvæmt upplýsingum sem hún hefði fengið hefðu um 12 þúsund mótmælendur verið drepnir af stjórnvöldum á seinustu 10 dögum.
Hún sagði mótmælin hafa náð hámarki á síðustu vikum og að klerkastjórnin beitti nú hreinni valdbeitingu til að berja þau niður.
Að hennar mati er um fjöldamorð að ræða og óttast hún að mannfallið eigi enn eftir að aukast.
Engin samskipti við fjölskyldu vegna lokana
Hosseini á fjölskyldu í Íran en segir að hún hafi engin samskipti við hana. Netið og símasamband séu lokuð og fólk geti hvorki hringt né sent skilaboð.
Hún segir mikla óvissu ríkja meðal Írana bæði innan lands og utan.
Margir glími við svefnleysi, kvíða og áfallastreitu vegna frétta af handtökum, aftökum og fjöldagröfum.
Óttast að mótmælin verði brotin á bak aftur
Aðspurð um verstu mögulegu niðurstöðuna segir Hosseini að stærsti óttinn sé að stjórnin nái að brjóta mótmælin á bak aftur með enn meira ofbeldi.
Ef mannfallið haldi áfram að vera svona mikið geti það einfaldlega orðið raunin að enginn verði eftir til að mótmæla á götum úti.
Hún segir Írana þurfa stuðning að utan og kallar eftir því að alþjóðasamfélagið, þar á meðal stórveldi, grípi inn í til að vernda almenna borgara.
Vonast eftir lýðræði í Íran
Hosseini segist vona að prins Reza Pahlavi fái að snúa aftur til Írans og leiða breytingu í átt að lýðræðislegu samfélagi.
Þar verði mannréttindi virt, þar á meðal réttindi kvenna, og þjóðfélagið byggt á fjölbreytileika trúarbragða og menningar.
Hún leggur áherslu á að Íran sé fjölmenningarlegt samfélag með ólíkan bakgrunn, trú og þjóðerni og að núverandi stjórnarfar endurspegli ekki vilja þjóðarinnar.
Segir ranghugmyndir spretta upp á Íslandi
Hosseini segir sig almennt upplifa góðar móttökur á Íslandi en að á síðustu dögum hafi hún heyrt ásakanir í garð Írana.
Sumir haldi því fram að þeir séu útsendarar erlendra leyniþjónusta, aðrir að þeir vilji flytja íslam til Íslands eða skapa ólgu í samfélaginu.
Hún segir slíkt algjörlega rangt og byggt á misskilningi og hræðslu.
„Við erum að flýja íslam“
Hosseini segir íranska flóttamenn ekki vilja flytja íslam með sér til Íslands.
Hún segir meirihluta Írana á Íslandi ekki vera múslima heldur séu að flýja trúna og að margir hafi sagt sig frá íslam, sumir tekið upp kristni.
Hún bendir á að íranskar konur hafi aldrei sjálfviljugar borið hijab og að mikill munur sé á þeim og fólki sem komi frá öðrum íslömskum ríkjum.
Að hennar sögn snýst barátta Írana um frelsi, ekki útbreiðslu trúar.
Hún segir föður sinn hafa hvatt hana til að yfirgefa landið og finna sér líf þar sem hún geti lifað frjáls.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt hlusta á allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.