Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, telur ekki hægt að útiloka að þungt orðalag og misheppnaðar þýðingar í íslensku PISA efni hafi áhrif á samanburð íslenskra nemenda við jafnaldra þeirra í öðrum OECD löndum.
Hann bendir á ýmis dæmi um óþarflega þung orð, stirðar þýðingar og hreinar frágangsvillur. Þótt ekkert sanni að þetta hafi haft mælanleg áhrif á niðurstöðurnar telur hann nauðsynlegt að málið verði rannsakað vandlega.
Lesskilningur forsenda árangurs í öllu prófinu
Eiríkur tekur fram að hann telji PISA prófin í grundvallaratriðum góð og gagnleg. Til þess að samanburður milli landa sé marktækur verði þó að tryggja að þýðingar séu sambærilegar frumtextanum og ekki séu notuð þyngri orð en sanngjarnt sé að ætlast til að meðalnemendur þekki.
Hann bendir á að lesskilningur sé ekki aðeins einn af þremur meginþáttum PISA heldur einnig forsenda þess að nemendur geti leyst verkefni í stærðfræði og náttúrufræði.
„Þetta gæti hamlað lesskilningi og leitt til þess að íslenskir nemendur kæmu verr út en jafnaldrar þeirra annars staðar, en um það er samt ómögulegt að fullyrða nokkuð nema með ítarlegum rannsóknum,“ skrifar Eiríkur.
„Mykja“ í stað „dýraskíts“
Meðal orðanna sem Eiríkur telur of þungt fyrir íslenska grunnskólanema er sögnin „ritrýna“. Hann segir orðið fyrst og fremst notað innan vísindasamfélagsins og telur ólíklegt að grunnskólanemar rekist oft á það.
Hann nefnir einnig orðið „mykja“, sem notað er sem þýðing á enska orðinu manure. Að hans mati hefði verið skýrara að nota orðið „dýraskítur“, sem sé gagnsætt þótt það sé sjaldgæfara í rituðu máli.
Eiríkur bendir jafnframt á stirðar og jafnvel villandi þýðingar. Enska setningin „That’s a lot of rats to feed“ hafi til dæmis verið þýdd sem „Það eru margar rottur sem þarf að fæða“. Íslenska setningin geti gefið til kynna að einhver eigi að gefa rottunum að éta, þótt merking frumtextans sé önnur.
Prófarkavillur vekja grunsemdir
Þá finnur Eiríkur ýmsar frágangsvillur. Í einni spurningu stendur: „Um hvað eru vísindamennirnir í greininni og Jared Diamond sammála um?“ þar sem orðið „um“ er tvítekið.
Annars staðar stendur „Landnemarnir gætur hafa tekið rotturnar með sér viljandi“ í stað „gætu“. Þá séu dæmi um að fyrirsagnir vísi nemendum á „Sala mynddiska“ og „Sendibíll“ þótt fyrirsagnir verkefnanna séu í raun „Sala á mynddiskum“ og „Flutningabíll“.
Hann segir ekki líklegt að hver einstök villa hafi mikil áhrif, en telur þær sýna að vinnubrögðin hafi ekki verið eins vönduð og skyldi.
Dæmin koma úr íslensku PISA efni sem birt hefur verið á vef OECD. Hluti þess tengist PISA 2025 en önnur verkefni voru upphaflega birt með eldri prófum.
Segir hnignunina engu að síður raunverulega
Eiríkur varar sérstaklega við því að gagnrýni hans verði túlkuð sem tilraun til að gera lítið úr niðurstöðum PISA.
Hann telur lítinn vafa leika á því að lesskilningi íslenskra unglinga sé ábótavant og að hann hafi farið minnkandi. Samanburður við fyrri ár sé að hans mati marktækur og mikilvægt sé að bregðast við niðurstöðunum af festu.
Spurningarmerkið snúi fyrst og fremst að samanburði við önnur lönd.
„Mér finnst að minnsta kosti ekki hægt að útiloka að eitthvað af þeim mun stafi af því hvernig íslensk þýðing prófsins er gerð úr garði,“ segir Eiríkur og kallar eftir því að áhrif þýðinganna verði rannsökuð vandlega.

