Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sakar forsætis- og utanríkisráðherra um að hafa svarað niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar með „refsiaðgerðum“ og segir ríkisstjórnina nú ætla að hraða bókun 35 í gegnum Alþingi.
Hann hafnar því að flytja frumvarpið sjálfur en býðst þess í stað til að hjálpa við að stilla upp alvöru landsliði til varnar Íslandi verði samningsbrotamál höfðað gegn landinu.
Segir fyrri yfirlýsingar hafa horfið
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur sagt að ríkisstjórnin muni leggja áherslu á að styrkja EES samninginn eftir að meirihluti kjósenda hafnaði áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur jafnframt boðað að frumvarp um bókun 35 verði lagt fram strax í haust.
Sigmundur segir þetta ganga þvert gegn vilja kjósenda.
„Allt tal um að virða vilja þjóðarinnar og áform um „grjótharða vörn fyrir hagsmuni Íslands“ hvarf eins og dögg fyrir sólu strax við sólarupprás sunnudaginn, 30. ágúst,“ skrifar hann.
Hann lýsir frumvarpinu þannig að löggjöf sem verði til hjá embættismönnum í Brussel og berist hingað með pósti verði gerð æðri en þau lög sem Alþingi setur út frá íslenskum þörfum og aðstæðum.
Bókun 35 snýst um hvaða reglur skuli gilda þegar íslensk lög sem innleiða EES reglur skarast á við önnur almenn lög. Frumvarpið myndi tryggja forgang EES reglna í slíkum tilvikum en nær ekki til stjórnarskrárinnar.
Spyr hvers vegna ESA beið
RÚV greindi frá því að Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, væri nú við það að höfða samningsbrotamál gegn Íslandi vegna bókunar 35. Málið hefði verið sett í bið fram yfir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
ESA hefur staðfest að málsókn sé til skoðunar en segir enga tímasetningu liggja fyrir á meðan ekki sé ljóst hvernig íslensk stjórnvöld hyggist bregðast við.
Sigmundur spyr hvers vegna beðið hafi verið með málið.
„Var málið ekki brýnt? Mátti ekki trufla sjáróðurinn? Var talið einfaldara að láta þennan hluta fullveldisins hverfa með hinum?“ spyr hann.
Sigmundur beinir jafnframt spjótum að Árna Páli Árnasyni, fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar og núverandi varaformanni ESA, og segir tíðindin af hugsanlegri málsókn koma eins og eftir pöntun.
Vill stilla upp varnarliði
Þorgerður Katrín skoraði á Sigmund í Silfrinu um helgina að gerast fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Hann tekur það ekki í mál.
„Það ætla ég ekki að gera en ég er til í að finna lið í vörnina fyrir Ísland,“ skrifar hann.
„Það verður alvöru landslið. Fólk með reynslu af því að taka slagi fyrir lýðveldið, verjast, sækja og vinna.“