Segir Reykjavíkurborg kúga verktaka til að láta lóðir af hendi án endurgjalds – Heldur því fram að verktaka hafi verið gert tilboð sem hann „gat ekki hafnað“

Þórarinn Hjartarson, þáttastjórnandi Einnar Pælingar, lýsir atburðarás sem hann segist hafa eftir Karli Þráinssyni hjá Arnarhvoli. Í myndbandinu segir hann að Reykjavíkurborg beiti verktaka þrýstingi og hótunum um tafir og stöðvun verkefna nema þeir láti eignir af hendi án endurgjalds.

Segir borgina hafa krafist bílastæðalóðar án endurgjalds

Samkvæmt lýsingu Karls var Arnarhvoll með tiltekna bílastæðalóð í Skipholti. Reykjavíkurborg hafi hins vegar gert þá kröfu að fá lóðina afhenta án greiðslu. Þegar því var mótmælt hafi borgin gert ljóst að höfnun væri ekki í boði og að verkefni fyrirtækisins gæti orðið fyrir ítrekuðum hindrunum ef ekki yrði gengið að kröfunni.

Auglýsing

Karl segir að honum hafi verið tjáð að borgin myndi nýta öll þau úrræði sem hún hefði til ráðstöfunar til að tryggja að verkefnið yrði aldrei klárað nema lóðin yrði afhent. Þar hafi meðal annars verið nefnt að senda ítrekað eftirlitsaðila, byggingafulltrúa og verkfræðinga á vettvang til að finna stöðugt eitthvað að framkvæmdinni.

„Sturlaðasta spilling sem ég hef heyrt“

Þórarinn segir þetta eitt alvarlegasta dæmi um spillingu í byggingariðnaði sem hann heyrt um og hafi hann nú heyrt þó nokkrar slæmar sögur. Hann segisrt vona að hann sé að hafa rétt eftir en að Karl hafi sjálfur sagt svona frá málinu.

Bílastæðalóðir á þessu svæði eru sagðar afar verðmætar. Þrátt fyrir það hafi Reykjavíkurborg, samkvæmt frásögninni, talið sig geta beitt valdi og kúgunum til að knýja fram hlýðni.

Ótti verktaka við yfirvöld

Í myndbandinu kemur einnig fram að verktakar séu almennt mjög varfærnir gagnvart opinberum skipulagsyfirvöldum. Ástæðan sé sú að þeir sem leggi sig upp á móti kerfinu eða gagnrýni það opinberlega eigi á hættu að fá ekki ný verkefni í framtíðinni.

Því sé það ekki áhættulaust fyrir Karl að stíga fram og lýsa þessu með þessum hætti. Með því sé hann að setja sig í viðkvæma stöðu gagnvart skipulagsyfirvöldum, bæði í Reykjavík og annars staðar á landinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing