Segir samfélagið lifa á „öld rökleysunnar“

Arnar Þór Jónsson, formaður Lýðræðisflokksins, birti færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir það sem hann kallar hnignun rökhyggju, gagnrýninnar hugsunar og heilbrigðs efa í íslensku samfélagi.

Segir kreddur hafa tekið við af rökhyggju

„Við lifum á öld rökleysunnar, þar sem rökhyggju, sannleiksleit, gagnrýninni hugsun og heilbrigðum efa hefur verið skipt út fyrir kreddur,“ skrifar Arnar Þór.

Auglýsing

Hann nefnir sem dæmi hugmyndir um að „menn geti breytt veðurfari ef þeir bara borga hærri skatta“ og að „kynin séu fleiri en tvö, líklegast nær 40“.

Að hans mati eigi að þessum hugmyndum fylgja „hugsunarlaust, í blindni og af heitu offorsi“.

Gagnrýnir útilokun þeirra sem eru ósammála

Arnar Þór segir að þessar hugmyndir séu kynntar sem tákn um allt sem gott og rétt sé í samfélaginu.

„‚Rökin‘ eru þau að kreddurnar tákni bræðralag mannkyns, góðvild, framfarir, skynsemi og menntun.“

Þeir sem gagnrýni slíkar hugmyndir séu hins vegar stimplaðir sem andstæðingar góðra gilda.

„Hver sem er á móti kreddunum hlýtur því að vera á móti öllu því sem gott er,“ segir hann og bætir við að slíkt fólk „þurfi ekki að ræða við og megi slaufa og fjarlægja úr hinu opinbera rými“.

Vísar í menningarlegt alræði

Í færslunni vísar Arnar Þór til greiningar Melanie Phillips, sem hann segir hafa lýst þessu ástandi sem öld rökleysunnar og menningarlegu alræði.

Hann heldur því jafnframt fram að samfélagið geri nú ráð fyrir algerri einsleitni í hugsun.

„Við lifum nú í samfélagi þar sem gert er ráð fyrir að allir hugsi eins,“ skrifar hann.

Arnar Þór segir að fólk hafi aðeins rétt til að vera það sjálft svo lengi sem það passi við ríkjandi hugmyndir.

Harðorð gagnrýni á stjórnmál og opinbera umræðu

Í færslunni gagnrýnir hann einnig stöðu stjórnmála á Íslandi og segir að á löggjafarþingi Íslendinga sé enginn raunverulegur hægri flokkur.

Hann nefnir jafnframt Ríkisútvarpið, ríkisrekna stjórnmálaflokka, listamenn á ríkislaunum og háskólaprófessora í ríkisháskólum sem dæmi um einsleitni.

„Og allt syngur þetta fólk einn og saman sönginn,“ skrifar hann.

Hvetur fólk til að hætta að þegja

Í lok færslunnar beinir Arnar Þór orðum sínum beint til þeirra sem hann segir hafa haldið sig til hlés undanfarin ár.

„En, kæri lesandi, þú sem hefur kosið að þegja og læðast með veggjum síðastliðin ár, og spila með og jánka blíðlega þegar þú heyrir hverja vitleysuna á fætur annarri, það er að kvarnast úr þessu og nú hefur þú val um að vera maður en ekki mús.“

P.S. – Dæmi um hversu lítil fyrirstaðan er

Arnar Þór lýkur pistlinum á að segja að hans mat sé að auðvelt sé að afhjúpa þá sem hann kallar kreddu predikara.

„Ef menn vilja sjá hversu lítil fyrirstaðan er og hversu auðvelt er að afhjúpa jafnvel ‚lærðustu‘ kreddu-predikarana, þá er t.d. hressandi að rifja upp þegar Sólveig Anna Jónsdóttir vann það þakkarverða starf að flengja Hallgrím Helgason á beran bossann á Samstöðinni.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing