Segir Samfylkingarráðherra hafa komið Heimildinni til bjargar – Fyrrum gjaldkeri flokksins stærsti eigandinn

Páll Vilhjálmsson, bloggari og fyrrverandi kennari, sakar Loga Einarsson fjölmiðlaráðherra um að hafa breytt skilyrðum ríkisstyrkja til fjölmiðla til að tryggja Heimildinni áframhaldandi aðgang að tugmilljónum úr ríkissjóði.

Opinber gögn staðfesta að skilyrði um útgáfutíðni prentmiðla var rýmkað eftir umsagnarferli og að breytingin kemur Heimildinni vel. Gögnin sýna hins vegar ekki að ákvæðið hafi verið samið sérstaklega fyrir miðilinn.

Auglýsing

Tapaði tæpum 19 milljónum

Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins um ársreikning Sameinaða útgáfufélagsins tapaði félagið 18,9 milljónum króna fyrir skatta árið 2025. Eigið fé var neikvætt um 13,8 milljónir í árslok.

Skuld við eigendur jókst úr 47 milljónum í 84 milljónir króna og viðskipta- og skammtímaskuldir námu um 22 milljónum.

Páll vísar jafnframt til skýrslu stjórnar sem fylgir ársreikningnum. Þar segir að skuldir félagsins séu að stærstum hluta við eigendur þess og að þeir muni ekki ganga að félaginu.

„Stjórn og stjórnendur félagsins telja því að félagið sé rekstrarhæft og gjaldfært þrátt fyrir taprekstur á árinu 2025 og neikvætt eigið fé í árslok 2025,“ segir í textanum sem Páll birtir.

Páll túlkar yfirlýsinguna sem viðurkenningu á því að reksturinn standi ekki undir skuldum sínum án áframhaldandi stuðnings eigenda. Stjórnin sjálf segir félagið hins vegar gjaldfært og orðið gjaldþrot kemur ekki fyrir í tilvitnuðum texta.

Fækkaði prentútgáfum verulega

Samkvæmt eldri reglum þurftu prentmiðlar á landsvísu að koma út að minnsta kosti 20 sinnum á ári til að eiga rétt á rekstrarstuðningi úr ríkissjóði.

Heimildin hefur fækkað prentútgáfum sínum verulega og kemur nú að jafnaði út mánaðarlega. Miðillinn hefði því ekki náð fyrra lágmarki með núverandi útgáfuáætlun.

Í drögum að nýju fjölmiðlafrumvarpi var upphaflega gert ráð fyrir að halda 20 tölublaða lágmarkinu. Blaðamannafélag Íslands lagði hins vegar til að viðmiðið yrði lækkað í 12 tölublöð vegna mikillar hækkunar á prentkostnaði.

Þegar Logi lagði stjórnarfrumvarpið fram á Alþingi 1. apríl hafði tillagan verið tekin upp. Í lögunum, sem Alþingi samþykkti í júní, segir nú einfaldlega:

„Prentmiðlar skulu koma út að lágmarki 12 sinnum á ári.“

Breytingin gerir Heimildinni kleift að halda prentútgáfu sinni mánaðarlegri og eiga samt rétt á styrknum.

Ráðuneytið segir fleiri miðla hafa kallað eftir breytingunni

Páll fullyrðir að Heimildin sé eini prentmiðillinn sem hafi þurft á breytingunni að halda.

Í minnisblaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins til Alþingis segir hins vegar að viðmiðið hafi verið lækkað að tillögu Blaðamannafélags Íslands og „útgefenda smærri miðla“.

Ráðuneytið segir að tillagan hafi einnig komið frá útgefendum smærri miðla en nefnir hvorki útgefendurna né miðlana á nafn.

Bendir á fjölskyldu- og flokkstengsl

Páll tengir umsögn Blaðamannafélagsins við Aðalstein Kjartansson, blaðamann og aðstoðarritstjóra Heimildarinnar. Aðalsteinn er bróðir Ingibjargar Daggar Kjartansdóttur ritstjóra og mágur Jóns Trausta Reynissonar framkvæmdastjóra útgáfufélagsins.

Aðalsteinn situr í stjórn Blaðamannafélagsins sem ritari en var áður varaformaður þess. Umsögn félagsins var undirrituð af Sigríði Dögg Auðunsdóttur formanni.

Páll bendir einnig á pólitísk tengsl eigenda útgáfunnar við Samfylkinguna.

Stærsti einstaki hluthafi Sameinaða útgáfufélagsins er Þungeind, félag Vilhjálms Þorsteinssonar, með tíu prósenta hlut. Vilhjálmur var áður gjaldkeri Samfylkingarinnar.

Logi var formaður Samfylkingarinnar frá 2016 til 2022 og situr nú í ríkisstjórn fyrir flokkinn.

Ingibjörg Dögg og Jón Trausti eiga jafnframt hvort um sig 7,6 prósenta hlut í útgáfufélaginu.

Fékk tæpar 78 milljónir í fyrra

Sameinaða útgáfufélagið fékk tæpar 77,7 milljónir króna í rekstrarstuðning úr ríkissjóði árið 2025. Það var þriðja hæsta greiðslan það ár.

Sú greiðsla byggðist á eldri lögum. Umsóknarfrestur vegna rekstrarstuðnings ársins 2026 rann út 1. september og niðurstaða úthlutunarinnar liggur ekki fyrir.

Í nýju lögunum er auk þess gerð krafa um að fjölmiðlaveita hafi ekki verið í fjárhagserfiðleikum í lok ársins á undan í skilningi evrópskra reglna. Úthlutunarnefnd þarf að leggja mat á hvort umsækjendur uppfylli það skilyrði.

„Orðið spilling hefur verið nefnt af minna tilefni,“ skrifar Páll að lokum.

UPPFÆRSLA:

Jón Trausti Reynisson skrifaði eftirfarandi athugasemd undir Facebook færslu Páls og bað um að hún yrði birt með fréttinni.

„Ágæti Páll. Þú verður að vanda þig og standa þig betur. Hér ertu að fara með hrein ósannindi. Fjölmiðill er ekki sviptur ríkisstyrkjum bara vegna þess að hann gefur út prentútgáfu, eins og er forsenda þín. Heimildin birtir margar fréttir á hverjum degi og fengi alltaf ríkisstyrk sem vefmiðill, sama hversu oft blað er gefið út. Þvert á móti er helsta breytingin í nýju lögunum að búinn var til „viðbótarstuðningur“ sem rennur eingöngu til Árvakurs (Morgunblaðsins) og Sýnar (Vísis), á þriðja hundrað milljóna aukalega.

Þannig mun Morgunblaðið hljóta um 7-800 þúsund krónur á dag frá ríkinu, ofan á 1-1,2 milljónir króna á dag sem útgerðarfélögin, eigendurnir, borga upp í tapi. Ég hef áður leiðrétt ósanna færslu frá þér með staðfestingu á ósannindum, sem ég sendi á þig, en þú leiðréttir ekki. Þú getur betur.“

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing