Einar Guðnason, formaður Miðflokksdeildar Kópavogs og varaþingmaður Miðflokksins, segir Ísland orðið að landi sem ungt fólk flýr.
Þetta kemur fram í pistli sem hann birti þar sem hann fjallar um brottflutning ungra Íslendinga og gagnrýnir harðlega forgangsröðun stjórnvalda.
Myndband kveikti umræðuna
Tilefni pistilsins er myndband sem stuðningsmaður Miðflokksins birti á samfélagsmiðlum með myndum frá gömlum tímum á Íslandi undir laginu „Stingum af“ eftir Mugison.
Einar segir skilaboðin skýr og að myndbandið endurspegli söknuð eftir einfaldari tímum og samfélagi þar sem framtíðin þótti öruggari.
Fleiri flytja burt en heim
Í pistlinum bendir Einar á að þróunin sé ekki ný, en hafi á undanförnum árum orðið sífellt alvarlegri.
Á árunum 2022 til 2024 hafi 1.315 fleiri Íslendingar á aldrinum 18–35 ára flutt úr landi en flutt heim.
„Þetta er stórt vandamál,“ skrifar hann og spyr hvers vegna ungt fólk sjái ekki framtíð sína á Íslandi.
Kerfislægur vandi
Einar telur að ástæðurnar séu margar og samtvinnaðar.
Hann nefnir meðal annars skort á leikskólaplássum, vanda í grunnskólum, ópraktískt fæðingarorlofskerfi, úrræðaleysi fyrir börn með fjölþættan vanda, langa biðlista í heilbrigðiskerfinu, bólginn húsnæðismarkað, verðbólgu, háa vexti og samgöngumál.
Gagnrýnir forgangsröðun stjórnvalda
Í skrifum sínum gagnrýnir Einar sérstaklega hvernig opinberu fé sé varið.
„Við setjum tugi milljarða króna í flóttamannaaðstoð og á meðan þurfa íslenskar mæður að fara með syni sína til Suður-Afríku á eigin kostnað til þess að þeir geti fengið aðstoð við fíknivanda,“ skrifar hann.
Hann segir jafnframt að framtíðarkynslóðir séu skuldbundnar til að greiða hundruði milljarða króna vegna loftslagsmála á sama tíma og biðlistar lengjast og námsárangur versni.
Ungt fólk stimplað sem öfgafullt
Einar segir að þegar ungt fólk reyni að benda á vandann sé það oft stimplað sem öfgafullt.
Að hans mati sé því ekki undarlegt að margir vilji „stinga af“ í von um betri lífskjör annars staðar.
Í lok pistilsins segir Einar að það sé skammgóður vermir að horfa einfaldlega á eftir ungu fólki úr landi.
Hann kallar eftir breyttri stefnu og skýrri forgangsröðun þar sem hagsmunir Íslands séu settir í fyrsta sæti.
„Fyrsta skrefið er að senda skýr skilaboð í forgangsröðun: Ísland fyrst, svo allt hitt.“