Hvers vegna duttu Píratar út af þingi?

Í Spjallinu með Frosta Logasyni ræðir Frosti við Björn Leví Gunnarsson, tölvunarfræðing og fyrrverandi þingmann Pírata, um ástæður þess að flokkurinn missti þingmenn í síðustu kosningum.

Að sögn Björns Leví var ekki um eina skýringu að ræða, heldur samspil margra þátta.

Auglýsing

„Það var ákveðinn fullkominn stormur. Ég skil alveg að fólk hafi skynjað að við vorum kannski á einhverjum röngum stað, hljómuðum á röngum stað,“ segir hann og bætir við að Píratar hafi samt bara verið að benda á grundvallarmannréttindi og hvernig eigi að framfylgja þeim.

Frosti spyr hvort það eigi við svokölluð woke málefni, sem hann segir að oft falli undir „ný mannréttindi“. Björn segir slíkt orðalag ekki gagnlegt.

„Það er nákvæmlega ekkert hjálplegt að koma og segja ‘það eru bara tvö kyn’. Líffræðilegi fjölbreytileikinn er miklu meiri,“ segir hann og nefnir intersex fólk sem einfalt dæmi um fjölbreytileikann.

Deilan um intersex og trans

Frosti gagnrýnir að intersex skuli dregið inn í umræðuna og segir að intersex fólk skilgreini sig almennt ekki sem trans.

„Það er bara ekki þannig,“ segir hann.

Björn mótmælir og bendir á að erfðafræðin sýni mikla breidd í kynbundinni tjáningu og útliti einstaklinga.

Hann segir skiptingu fólks í box á borð við karl og kona ekki endilega endurspegla raunveruleikann.

Umræðan um 72 kyn og frjálsar skilgreiningar

Frosti vísar í ummæli bandarísks prófessors við Harvard sem sagði líffræðileg kyn vera tvö og neyddist til að segja starfi sínu lausu í kjölfarið. Hann spyr hvort réttlætanlegt sé að háskólar á Vesturlöndum séu að segja fræðimönnum upp störfum vegna slíkra skoðana á þessu sviði.

Björn segist ekki þekkja málin nægilega vel til að leggja mat á þau, en Frosti svarar að hægt sé að viðurkenna fjölbreytni án þess að „búa til hundrað milljón kyn“.

Kynjaskipting í íþróttum

Samræðurnar færast síðan yfir í íþróttir.

Frosti leggur áherslu á að kynjaskipting sé fyrst og fremst kvenréttindamál og að afnám hennar væri mjög ósanngjarnt fyrir konur.

Björn bendir á móti á að í mörgum íþróttum sé þegar boðið upp á opna flokka, þar sem bæði karlar og konur geti keppt.

„Þetta er kjarni ástæðunnar fyrir fallinu“

Að lokum dregur Frosti upp þá mynd að einmitt þessar umræður séu hluti af ástæðunni fyrir því að Píratar fengu ekki brautargengi í kosningunum.

„Ég held að þetta sé einhver kjarni í því af hverju Píratar duttu af þingi. Þetta eru mál sem almenningur er orðinn svolítið þreyttur á láta lesa yfir sér með,“ segir hann.

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing