Sean „Diddy“ Combs heldur fram sakleysi sínu og segir lífsstíl sinn vera samþykktan innan swinger-menningar.
Sean „Diddy“ Combs, áhrifamikill tónlistarmaður og frumkvöðull, stendur frammi fyrir alvarlegum ákærum um kynlífsþrælkun og skipulagða glæpastarfsemi. Hann hefur lýst yfir sakleysi sínu af öllum ákærum og neitar öllum málamiðlunum við saksóknara. Réttarhöldin eru áætluð að hefjast með vali á kviðdómi þann 5. maí 2025.
Í undirbúningi réttarhalda hefur verjandi Sean „Diddy“, Marc Agnifilo, lagt áherslu á að lífstíll skjólstæðings hans sé viðurkenndur og samþykktur lífstíll „swinger-a“. Hann hefur lýst Sean sem þátttakanda í samþykktu kynlífi með mörgum aðilum og þar hafi verið ráðnar fylgdarkonur til þátttöku og skipulagðir viðburðir sem hafa verið kallaðir Freak off. Hann heldur því fram að slíkur lífsstíll væri algengur og að Sean hefði ekki talið hegðun sína óviðeigandi.
Saksóknarar halda því fram að Sean hafi neytt konur til þátttöku í kynferðislegum athöfnum með hótunum um ofbeldi og fjárhagslegum þrýstingi. Þeir segja að viðburðirnir hafi oft staðið yfir í nokkra daga og þær verið undir áhrifum vímuefna. Þeir hafa einnig lagt fram myndbandsupptökur sem þeir telja sýna Sean ráðast á fyrrverandi kærustu sína, Cassie Ventura, á hóteli í Los Angeles árið 2016. Verjendur Sean reyndu að fá myndbandið útilokað sem sönnunargagn en dómari hafnaði þeirri beiðni.
Verjendur Sean hafa gagnrýnt ákærurnar og sagt þær byggðar á kynþáttahatri og siðferðislegri þröngsýni. Þeir halda því fram að kynlífsathafnirnar hafi verið samþykktar af öllum aðilum og að myndbandsupptökur sýni ekki merki um nauðung eða ofbeldi.
Sean hefur verið í varðhaldi síðan í september 2024 og hefur þrisvar sinnum verið synjað um lausn gegn tryggingu. Ef hann verður sakfelldur gæti hann átt yfir höfði sér áratuga fangelsisdóm.
Réttarhöldin munu varpa ljósi á hvort hegðun Sean falli undir samþykkta menningu eða hvort hún hafi farið yfir mörk laganna.