Segja að breska sveitin sé „of hvít“ og hefja aðgerðir til að fjölga minnihlutahópum í dreifbýli

Breski Verkamannaflokkurinn hefur tilkynnt að unnið séð að áætlunum sem miða að því að laða fleiri minnihlutahópa til að á landsbyggðinni. Verkefnið er á vegum umhverfisráðuneytisins Defra og nær til valinna svæða víða um England.

Yfirvöld á fjölda svæða, þar á meðal í Chilterns, Cotswolds og Malvern Hills, hafa samþykkt markmið sem eiga að auka „fjölbreytni“ íbúa og gesta. Í gögnum ráðuneytisins kemur fram að hvítt millistéttarfólk sé sá hópur sem mest sækir í svæðin og því þurfi að breyta.

Dreifbýlinu lýst sem „hvítu umhverfi“

Auglýsing

Í skýrslum er enska dreifbýlinu og landsbyggðinni lýst sem að mestu „hvítu umhverfi“. Þar er hvatt til aðgerða til að gera sveitina aðgengilegri og meira aðlaðandi fyrir fólk af ólíkum uppruna.

Sem dæmi hefur verið sett af stað sérstakt kynningarstarf í Chilterns sem beinist að múslimum í nærliggjandi borgum. Einnig er gert ráð fyrir að kynningarefni verði þýtt á fleiri tungumál og að lögð verði meiri áhersla á fjölbreytni í ráðningum í störf á svæðinu.

Rannsóknin leit einnig til þess hvaða ástæður eru fyrir því sumir forðast sveitina. Þar er meðal annars nefnt að ótti við hunda geti fælt fólk frá, en hundar eru oft illa liðnir meðal múslima og því lagt til að hertar reglur um lausagöngu hunda verði skoðaðar.

Í yfirlýsingu frá Malvern Hills segir að margir úr minnihlutahópum hafi lítil tengsl við náttúruna og landsbyggðina í Bretlandi þar sem foreldrar og afar þeirra hafi ekki upplifað sig örugga í slíkum ferðum.

Sveitapöbbar nefndar sérstaklega

Í skýrslunni eru hefðbundnar krár í dreifbýli nefndar sem möguleg hindrun, en þar kemur fram að múslimar frá pakistan og banglades hafi lýst því að slíkir staðir geti skapað stemmingu sem lætur þeim líða eins þeir séu ekki velkomnir.

Fleiri landsvæði hafa lýst því yfir að þau muni hefja aðgerðir sem taka mið af ólíkum menningarlegum þegar kemur að sýn á útivist og náttúru.

Defra segir markmiðið vera að tryggja að allir skattgreiðendur geti notið náttúru landsins. Ráðuneytið segir að unnið verði með samfélögum minnihlutahópa, fyrirtækjum og stofnunum til að hjálpa fólki að njóta útivistar á öruggan og ábyrgan hátt.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing