Segja íslensku ríkisstjórnina úr takti við þjóðina Varoufakis segir áframhald ESB-viðræðna hafa verið „algjöra brjálsemi“

Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi er þungur áfellisdómur yfir stöðu og ásýnd Evrópusambandsins. Þetta segja þeir Yanis Varoufakis, fyrrverandi fjármálaráðherra Grikklands, og Wolfgang Münchau, þýskur hagfræðingur og einn kunnasti álitsgjafi Evrópu um efnahags- og Evrópumál.

Í nýjum þætti hlaðvarpsins The Econoclasts, undir yfirskriftinni Iceland just shattered the EU illusion, fjalla þeir ítarlega um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Þar höfnuðu 52,8 prósent kjósenda því að Ísland hæfi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið en 47,2 prósent studdu framhald viðræðna.

Auglýsing

Münchau telur niðurstöðuna hafa mun víðtækari þýðingu en eingöngu fyrir íslensk stjórnmál. Hún sýni hvernig Evrópusambandið sé nú metið utan sambandsins og að aðdráttarafl þess hafi minnkað verulega.

„Þetta leysir málið, að mínu mati, í heila kynslóð,“ segir Münchau og telur afar ólíklegt að Íslendingar taki aðildarmálið aftur upp á næstu árum.

Segir unga fólkið hafa snúist gegn ESB

Münchau vekur sérstaka athygli á því sem hann segir hafa verið mikla breytingu á afstöðu ungs fólks meðan á kosningabaráttunni stóð.

Hann vísar til þess að í upphafi baráttunnar hafi ungir kjósendur samkvæmt skoðanakönnunum verið mjög hlynntir aðild að Evrópusambandinu. Í lok hennar hafi staðan hins vegar snúist við og meirihluti unga fólksins verið kominn á móti.

Að mati Münchau gefur þetta til kynna að Evrópusambandið njóti ekki lengur sjálfkrafa stuðnings yngri kynslóða, líkt og oft hafi verið gengið út frá í evrópskri stjórnmálaumræðu.

Hann gagnrýnir jafnframt þau viðbrögð sem gjarnan komi fram þegar málstaður Evrópusambandsins bíður ósigur í kosningum. Þá sé sjaldnast horfst í augu við eigin mistök heldur leitað að utanaðkomandi sökudólgum.

„Þegar málstaður Evrópusambandsins tapar hefst alltaf þessi sama leit að einhverjum til að kenna um,“ segir Münchau.

Þá séu Rússar, Vladimir Pútín, hægrisinnaðir auðmenn, fjármögnun andstæðinga eða meintar rangfærslur nefndar til sögunnar. Sjaldnar sé spurt hvort málflutningur ESB-sinna hafi einfaldlega verið ósannfærandi.

Evran myndi ekki leysa verðbólguvandann

Münchau tekur sérstaklega fyrir þá röksemd að evran gæti leyst verðbólgu- og vaxtavanda Íslands. Hann segir hana ekki standast efnahagslega skoðun.

Aðild að myntbandalagi leysi ekki sjálfkrafa verðbólguvanda einstakra ríkja. Til þess þyrfti peningastefna evrusvæðisins í heild sinni að henta íslenska hagkerfinu betur en sjálfstæð íslensk peningastefna.

„Evran myndi ekki laga verðbólguvandann,“ segir Münchau.

Hann bendir á reynslu Eystrasaltsríkjanna, þar sem verðbólga hafi áfram verið mikil þrátt fyrir upptöku evrunnar. Verðbólga á Íslandi eigi sér rætur í innlendri eftirspurn, framboðshlið hagkerfisins og öðrum íslenskum aðstæðum sem innganga í myntbandalag geti ekki leyst.

Münchau segir jafnframt að Ísland hefði orðið nettógreiðandi til Evrópusambandsins. Landið hefði því þurft að greiða verulega fjármuni inn í sambandið án þess að augljóst væri hvaða nýja efnahagslega ávinningur fengist á móti.

Ísland njóti þegar aðgangs að innri markaðnum í gegnum EES-samninginn. Full aðild myndi hins vegar fylgja aukið regluverk, fjárútlát og framsal valds, auk þess sem sjávarútvegsmálin yrðu erfið.

Evrópusambandið ekki lengur jafn aðlaðandi

Münchau segir mikla breytingu hafa orðið á stöðu Evrópusambandsins frá aldamótum. Fyrir um aldarfjórðungi hafi margir talið Evrópu líklegasta heimshlutann til að blómstra á 21. öldinni. Þá hafi framleiðni verið að nálgast Bandaríkin og bjartsýni ríkt um evruna og frekari samruna.

Sú þróun hafi ekki gengið eftir.

Að hans mati hefur sambandið reynst illa í stakk búið til að skapa nýsköpun og takast á við tæknibreytingar. Regluverk þess, fjármálareglur og stofnanauppbygging vinni jafnvel gegn nýsköpun á sama tíma og Bandaríkin og Kína sæki hratt fram.

„Myndi ég ganga í Evrópusambandið í dag? Nei, það myndi ég ekki gera,“ segir Münchau.

Hann telur sambandið einkum aðlaðandi fyrir fátækari ríki sem geti orðið nettóþiggjendur úr sjóðum þess. Fyrir lítið og auðugt ríki eins og Ísland sé dæmið allt annað.

Varoufakis fagnar niðurstöðunni

Yanis Varoufakis gengur enn lengra en Münchau og lýsir mikilli ánægju með niðurstöðu Íslendinga.

„Það hefði verið algjör brjálsemi að samþykkja áframhaldandi aðildarviðræður,“ segir Varoufakis og lýsir hugsanlegri aðild Íslands sem undirgefni við Brussel.

Hann segir Íslendinga hafa sýnt skynsemi með því að líta til reynslu landsins af fjármálahruninu árið 2008. Þar beri sérstaklega að bera saman viðbrögð Íslands og Írlands.

Bæði ríkin hafi glímt við gríðarlegt bankahrun eftir að einkareknir bankar höfðu þanist út langt umfram stærð hagkerfanna. Viðbrögðin hafi hins vegar verið gerólík.

Á Írlandi hafi skuldir einkabankanna verið færðar yfir á almenning undir miklum þrýstingi frá Seðlabanka Evrópu. Afleiðingin hafi verið gríðarleg skuldsetning írska ríkisins og þungar byrðar fyrir almenning.

Ísland hafi staðið utan evrukerfisins og því getað farið aðra leið. Bankarnir hafi verið látnir falla og íslenskir kjósendur hafnað því í þjóðaratkvæðagreiðslum að almenningur axlaði allar skuldbindingar þeirra.

Varoufakis segir að Ísland hafi vissulega gengið í gegnum afar erfiðan tíma en náð sér mun hraðar en ella vegna þess að landið hafði sjálfstætt svigrúm til að bregðast við.

„Hvers vegna ættu Íslendingar að vilja endurskapa írsku aðstæðurnar á Íslandi í dag?“ spyr hann.

Harðorður um hagsmuni stjórnmálastéttarinnar

Varoufakis er einnig afar gagnrýninn á íslenska stjórnmálamenn sem börðust fyrir áframhaldandi aðildarviðræðum.

Hann veltir því upp hvers vegna ríkisstjórn sem sé svo hlynnt Evrópusambandinu hafi setið í landi þar sem meirihluti þjóðarinnar hafnaði ESB-vegferðinni. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafi að hans mati verið úr takti við meirihluta eigin þjóðar.

Varoufakis segir að hluti skýringarinnar kunni að liggja í þeim tækifærum sem evrópska valdakerfið skapar fyrir stjórnmálamenn, embættismenn og aðra úr valdastéttinni. Þar séu vel launuð störf, nefndarseta og áhrifastöður í Brussel.

Hann gengur svo langt að kalla þetta „löglega spillingu“ og telur persónulega og faglega hvata stjórnmálaelítunnar geta skýrt hluta af áhuga hennar á auknum Evrópusamruna.

Münchau tekur ekki að öllu leyti undir þá skýringu. Hann telur frekar að um menningarlega og félagslega gjá sé að ræða. Stjórnmálamenn og embættismenn eigi meiri samskipti við evrópskar valdastofnanir og upplifi sig því sem hluta af þeim heimi á annan hátt en almenningur.

Niðurstaðan sé hins vegar sú sama: ESB-sinnuð ríkisstjórn geti verið úr takti við þjóð sem vill ekki ganga í sambandið.

„Aðildarmálið er búið“

Báðir telja þeir að niðurstaðan á Íslandi hafi veikt þá ímynd að þjóðir Evrópu sækist almennt eftir sífellt nánari samruna.

Íslendingar hafi fengið raunverulegt val og kosið að halda eigin svigrúmi. Það hafi áhrif langt út fyrir Ísland, enda geti Evrópusambandið ekki lengur bent á landið sem dæmi um ríki sem bíði þess að komast inn.

„Aðildarmálið er búið,“ segir Münchau.

Samskipti Íslands og Evrópusambandsins muni vitaskuld halda áfram á grundvelli EES-samningsins, viðskipta og annarrar samvinnu. En skilaboðin frá íslenskum kjósendum séu að mati þeirra skýr:

Ísland vill eiga samstarf við Evrópu – án þess að verða hluti af Evrópusambandinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing