Segjast hafa bjargað 62 þúsund börnum frá mansali og kynlífsþrælkun – Fullyrða að fyrri stjórn hafi týnt hundruðum þúsunda barna

Tom Homan, landamærastjóri í stjórn Donalds Trump, segir að yfir 62.000 fylgdarlausum börnum sem ratað höfðu yfir landamærin, hafi verið bjargað úr skelfilegum aðstæðum undanfarna mánuði, þar á meðal mansali og kynlífsþrælkun.

Hann ræddi málið í viðtali á Fox & Friends á sunnudag og gagnrýndi jafnframt harðlega stjórnsýslu Joe Biden, sem hann segir hafa fórnað börnunum fyrir pólitík.

Segir Biden stjórnina hafa týnt um 300 þúsund börnum

Auglýsing

„Meira en hálfri milljón barna var smyglað inn í landið undir stjórn Joe Biden,“ sagði Homan í viðtalinu. „Þeir týndu 300.000 börnum. Trump setti strax í forgang að finna þessi börn og bjarga þeim.“

Homan hélt áfram og sagði að mörg barnanna hefðu lent í hörmulegum aðstæðum.

„Við vitum að mörg þeirra eru í kynlífsþrælkun. Mörg í nauðungarvinnu. Mörg eru misnotuð. Ég get ekki einu sinni rætt allan þann viðbjóð sem þessi börn hafa þurft að þola. Yfir 62.000 börnum hefur verið bjargað.“

Samkvæmt Homan nær þessi tala yfir tímann frá því Trump tók við embætti og fram til síðasta föstudags.

Umdeildar tölur um „týnd“ börn

Repúblikanar og ýmsir uppljóstrarar hafa haldið því fram að 300.000 til 500.000 fylgdarlaus börn hafi týnst eða horfið á meðan Biden var forseti.

Gagnrýnendur segja að tölurnar byggi á skýrslu frá Landamæra- og öryggisráðuneytinu, þar sem fram kom að ICE hefði sleppt um 291.000 börnum á árunum 2019 til maí 2024.

Engin leið væri til að rekja ferðir þeirra eftir komu.

Trump og Homan notuðu þessar tölur í kosningabaráttunni árið 2024.

Homan benti á að Trump hefði fengið mikla gagnrýni fyrir hörku í landamæraeftirliti, en að niðurstöðurnar sýndu hve mikilvægar þær aðgerðir væru.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing