Málefni sem nú grefur undan ríkisstjórn Starmer vakti harða gagnrýni nýlega eftir að í ljós kom að Peter Mandelson, fyrrum sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, hafði náin tengsl við barnaníðinginn Jeffrey Epstein en samt var hann gerður að sendiherra í Bandaríkjunum vegna „hæfileika sinna“.
Peter Mandelson, var rekinn á fimmtudag eftir að Bloomberg birti tölvupósta sem hann hafði sent níðingnum Jeffrey Epstein, jafnvel eftir að hann hafði verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum.
Þar lýsti hann Epstein sem „ástkærum vin“ og hvatti hann til að sækja um reynslulausn.
Áður en þessar upplýsingar urðu opinberar hafði Starmer lýst yfir „fullu trausti“ á Mandelson í þinginu.
Sendiherra í miðju hneykslis
Keir Starmer forsætisráðherra vissi af „sterku sambandi“ Peter Mandelson við bandaríska barnaníðinginn Jeffrey Epstein þegar hann samþykkti að gera hann að sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum.
Þetta viðurkenndi viðskiptaráðherrann Peter Kyle í sjónvarpsviðtali í gær.
Kyle sagði að það hefði verið „pólitískt mat“ að hæfileikar Mandelson, einkum í samskiptum við forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, gerðu það þess virði að taka áhættuna.
„Á þessum tímapunkti vissum við samt ekki af tölvupóstunum sem nú hafa komið fram,“ sagði Kyle í viðtali við Sky News.
Aðstandendur fórnarlamba bregðast hart við
Sky Roberts, bróðir Virginia Giuffre, eins þekktasta fórnarlambs Epstein, sagði í viðtali við BBC að Mandelson hefði „aldrei átt að vera gerður að sendiherra“.
Kærasta hans, Amanda Roberts, bætti við: „Af hverju þurfum við alltaf að grafa upp beinagrindurnar sjálf áður en fólk er dregið til ábyrgðar?“
Ógn við Starmer innan úr eigin röðum
Innan Verkamannaflokksins eru nú uppi áhyggjur af því að Mandelson gæti valdið miklum skaða, nú þegar hann telur sig hafa verið svikinn af Starmer.
Samkvæmt frétt The Times vissi forsætisráðuneytið af hneykslismálunum þegar Starmer lýsti yfir stuðningi sínum við Mandelson opinberlega.
Einn þingmaður sagði í trúnaði: „Hann hlýtur að vita nóg til að fella Keir, ef hann vill.“
Líklegur til að fá háa starfslokagreiðslu
Mandelson neitaði að segja af sér og fær því hugsanlega háar starfslokagreiðslur, allt að 200.000 pund, nema ríkisstjórnin geti sannað að hann hafi gefið rangar upplýsingar við ráðningu.
Utanríkisráðuneytið fékk upplýsingar um tölvupóstana meira en sólarhring áður en þeir voru birtir opinberlega.
Samt lýsti forsætisráðherrann yfir stuðningi við Mandelson í þinginu.
Fyrrverandi sendiherra segir árangur Mandelson ótrúlegan – en tengslin „óskiljanleg“
Lord Kim Darroch, sem áður gegndi embætti sendiherra í Washington, sagði að árangur Mandelson í starfi hefði verið eftirtektarverður, en sambandið við Epstein eftir dóm væri óskiljanlegt.
„Hann virðist hafa náð góðum tengslum við Hvíta húsið og forsetann sjálfan. Hann fékk undirritað tæknisamkomulag sem kann að reynast mikilvægt fyrir Bretland,“ sagði Darroch í viðtali við Sky News.
Íhaldsflokkurinn boðar rannsókn
Laura Trott, menntamálaráðherra í skuggaráði Íhaldsflokksins, sagðist ætla að „nota öll tiltæk ráð“ til að fá frekari upplýsingar upp á yfirborðið.
„Við vitum að Bloomberg lagði spurningarnar fyrir Utanríkisráðuneytið á þriðjudag. Ég hef unnið í Number 10 (Downing stræti 10)og það er ómögulegt að slíkar upplýsingar hafi ekkiratað rétta leið. Við ætlum að krefjast allra gagna og ráðlegginga sem bárust forsætisráðherranum og hver tók ákvörðunina.“
Stjórnin undir þrýstingi – hver vissi hvað og hvenær?
Ríkisstjórn Keir Starmer stendur nú frammi fyrir ásökunum um skelfilega dómgreind og mögulegar tilraunir til yfirhylmingar.
Margir krefjast fullrar rannsóknar á því hvenær upplýsingarnar um tengsl Mandelson við Epstein lágu fyrir og hvers vegna var gripið til aðgerða svona seint.