Sérfræðingur undrandi á fjölda nauðgunartilkynninga gegn öldruðum konum í Svíþjóð – Mynstur passar ekki við önnur mál

Nánast 400 tilkynningar um nauðganir gegn konum eldri en sextíu ára hafa borist lögreglu frá árinu 2021 til dagsins í dag.

Í mörgum tilfellum er gerandinn ókunnur brotaþola og samkvæmt sérfræðingi lögreglu eru heimahjúkrunarstarfsmenn meðal þeirra sem koma fyrir í málunum.

„Ég er mjög undrandi yfir þessum tölum“

Auglýsing

Þetta segir Anders Östlund, sérfræðingur lögreglu, í samtali við Upsala Nya Tidning.

Hann hefur farið yfir allar tilkynningar frá árinu 2021.

Af þeim voru aðeins 112 mál þar sem brotaþoli þekkti gerandann.

Í öðrum málum var um að ræða „óþekktan einstakling“ eða manneskju sem hafði „aðra tengingu“ við brotaþola.

Samkvæmt skýrslunum áttu meint brot sér nær undantekningarlaust stað inni á heimilum kvennanna.

„Að vera nauðgað af ókunnugum innanhúss er yfirleitt mjög óvenjulegt. Nema þegar kemur að konum yfir sextugt,“ segir Östlund við blaðið.

Heimahjúkrun starfar oft nærri brotaþolum

Östlund hefur farið nánar yfir um tuttugu tilkynningar þar sem gerandi var skilgreindur sem ókunnugur eða í óljósu sambandi við brotaþola.

Í öllum þeim málum eru starfsmenn í heimahjúkrun grunaðir.

Hann leggur þó áherslu á að um sé að ræða tilkynningar, ekki dóma.

„Það að tilkynningarnar séu 398 þýðir ekki að um 398 sannaðar nauðganir sé að ræða. Hafa þarf í huga að sumir aldraðir eru ringlaðir eða þjást af heilabilun,“ útskýrir hann. „En af sömu ástæðu er ástæða til að hafa áhyggjur af tölum þar sem margir muna ekki eða geta ekki sagt frá því sem þeir hafa orðið fyrir. Eða að aðstandendur taki frásögn þeirra ekki trúanlega.“

Málið hefur vakið miklar áhyggjur og kallað eftir nánari rannsókn á aðstæðum aldraðra kvenna og öryggi þeirra innan eigin heimila.

Opinber gögn sýna að starfsfólk í umönnun aldraðra í Svíþjóð er að stórum hluta konur og fólk af erlendum uppruna, þar sem um 53 prósent þeirra sem annast almenna umönnun og 37 prósent sjúkraliða eru af erlendum uppruna samkvæmt SKR.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing