Síðastliðið haust greindust tveir einstaklingar með virka berklasýkingu í gistiskýlum á vegum Reykjavíkurborgar.
Þar sem berklar eru lögboðinn tilkynningarsjúkdómur þurfti tafarlaust að hefja smitrakningu.
Hefðbundin aðferðarfræði dugði hins vegar skammt, enda voru smituðu einstaklingarnir heimilislausir og því erfitt að rekja tengslanet þeirra, margir í hópnum hafa ekki aðgang að síma, eru stöðugt á flakki og njóta takmarkaðrar heilbrigðisþjónustu.
Nauðsynlegt að hugsa út fyrir kassann
Brugðið var á það ráð að mynda sérstakt vettvangsteymi mannað af fólki sem býr yfir bæði faglegri þekkingu og persónulegri reynslu af aðstæðum hópsins.
Í teyminu eru Guðmundur Ingi Þóroddsson og Ingólfur Snær Víðisson frá félaginu Afstöðu, sem beitir sér fyrir bættum fangelsismálum og betrun, hjúkrunarfræðingarnir Kristín Davíðsdóttir frá göngudeild smitsjúkdóma og Jónína Guðný Bogadóttir frá Frú Ragnheiði, auk eins notanda gistiskýla sem hefur komið að smitrakningu.
Teymið vinnur í nánu samstarfi við heilbrigðisstarfsfólk göngudeildar smitsjúkdóma.
Upphaflega snerist verkefnið um að tryggja daglega lyfjagjöf til einstaklings sem erfitt hafði reynst að ná til.
Snúin meðferð hjá þessum hóp
Meðferðareftirfylgni við berklum er lykilatriði, þar sem lyfjagjöf tekur langan tíma og þarf að fylgja henni nákvæmlega eftir.
Verkefnið gekk vonum framar og í byrjun árs 2025 var hlutverk teymisins formlega stækkað til að sinna smitrakningu í víðara samhengi.
Í þeirri vinnu hefur teymið leitað víða fanga og haft samband við fjölda stofnana og úrræða sem sinna jaðarsettum einstaklingum.
Þar á meðal eru gistiskýli Reykjavíkurborgar, vettvangs- og ráðgjafateymi borgarinnar, Fangelsismálastofnun, Kaffistofa Samhjálpar og ýmis meðferðarúrræði.
Markmiðið er að hafa uppi á fólki sem mögulega hefur orðið fyrir smiti, bjóða upp á blóðprufur og hefja meðferð ef þurfa þykir.
Að sögn meðlima teymisins hefur þessi nálgun, þar sem treyst er á gagnkvæmt traust, þekkingu á aðstæðum hópsins og sveigjanlegar aðferðir, reynst bæði árangursrík og mannúðleg.
Þau sjá fyrir sér að slíkt teymi gæti gegnt lykilhlutverki í fleiri slíkum verkefnum fyrir heimilislausa og aðra jaðarsetta hópa í framtíðinni.