Sigmundur Davíð ræddi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar við GB News

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, ræddi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar við Christopher Hope í þættinum State of the Nation á bresku sjónvarpsstöðinni GB News. Hope bar sigur nei-sinna saman við Brexit og sagði fullveldið hafa ráðið úrslitum í báðum kosningum.

„Nákvæmlega,“ svaraði Sigmundur og segir niðurstöðuna staðfesta vilja Íslendinga til að ráða eigin örlögum. Hann telur að niðurstaðan eigi að binda enda á umræðuna um aðild að Evrópusambandinu næstu 15 til 20 árin.

Auglýsing

Snýst ekki aðeins um fiskinn

Hope spurði hvort andstaða Íslendinga við ESB snerist fyrst og fremst um fiskveiðar og hættuna á að fiskiskip frá ríkjum sambandsins sæktu á Íslandsmið.

Sigmundur sagði sjávarútveginn hafa verið fyrirferðarmikinn í umræðunni en málið væri mun stærra.

„Þetta snýst einfaldlega um að Íslendingar vilja vera sjálfstæðir og ráða eigin örlögum,“ sagði hann.

„Við viljum ekki að erlent vald eða erlend stofnun ákveði hvernig lögin okkar eiga að vera eða að Evrópudómstóllinn ráði utanríkisstefnu okkar.“

Hann sagði Íslendinga jafnframt hafa fylgst með þróun Evrópusambandsins.

„ESB fer úr einni kreppu í aðra á meðan Ísland hefur farið, að ég tel óhætt að segja, úr einum sigri í annan. Við unnum okkur út úr fjármálakreppunni og gerðum það með því að nýta sjálfstæði okkar.“

Sagði Brussel að málið væri úr sögunni

Sigmundur sagðist gera ráð fyrir að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar yrði virt þótt hún væri ekki bindandi að lögum.

„Ég held að nánast allir Íslendingar geri ráð fyrir að þetta sé bindandi niðurstaða. Því ættum við að vera laus við þessa umræðu í að minnsta kosti 15 eða 20 ár.“

Hann rifjaði jafnframt upp samskipti sín við Evrópusambandið þegar hann var forsætisráðherra. Þá hefði ríkisstjórn hans tilkynnt sambandinu að Ísland hygðist ekki halda aðildarviðræðum áfram.

Sigmundur sagðist meðal annars hafa farið til Brussel og fundað með Jean-Claude Juncker og Donald Tusk.

„Ég útskýrði fyrir þeim að þetta væri búið. Þetta væri á enda. Við værum ekki lengur á leið inn í ESB og þeir ættu að taka okkur af öllum listum. Við værum ekki lengur umsóknarríki.“

Hann sagði ESB hafa orðið við því og að árum saman hefði enginn litið á Ísland sem umsóknarríki.

Kallar endurvakningu umsóknarinnar „klikkaða hugmynd“

Sigmundur sagði málið síðan hafa breyst þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum. Einn stjórnarflokkanna hefði verið stofnaður utan um það meginmarkmið að Ísland gengi í Evrópusambandið.

„Þá komu þau, ásamt ESB, með þessa klikkuðu hugmynd að umsóknin væri enn í gildi þótt við hefðum dregið hana til baka.“

Atkvæðagreiðslan hefði því snúist um hvort Ísland ætti að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing