Sigmundur Davíð sakar Flokks fólksins um að fara beint gegn kosningaloforðum og „segja bara eitthvað“ til að verja það

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að formaður Flokks fólksins hafi farið með rangt mál þegar hún brást ókvæða við orðum Sigríðar Á. Andersen á Alþingi fyrr í dag. Hann segir ráðherra hafa vanist því að „segja bara eitthvað“.

Þetta kemur í kjölfar orðaskipta á Alþingi þar sem Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, gagnrýndi málflutning Sigríðar Á. Andersen harðlega. Inga sagði þar að það hefði ávallt verið á stefnuskrá flokks síns að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Auglýsing

„Flokkur fólksins treystir sinni þjóð til þess að axla þá ábyrgð að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu, það hefur verið stefna Flokks fólksins frá byrjun og það hefur ekkert breyst hvað það varðar,“ sagði Inga meðal annars á þingfundi og bætti við að gagnrýni Sigríðar væri „algjör falsfrétt og hallærisleg pólitík frá A til Ö“.

Bendir á svör flokksins fyrir kosningar

Í færslu á Facebook segir Sigmundur Davíð að þessi málflutningur standist ekki þegar litið sé til afstöðu flokksins fyrir síðustu kosningar. Hann birtir þar svör Flokks fólksins við spurningum um Evrópumál.

Screenshot
Sigmundur birtir skjáskot af svörum Flokks Fólksins frá því fyrir kosningar

Samkvæmt þeim svörum sagðist flokkurinn ekki styðja að tekin yrðu skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið á næsta kjörtímabili, og þjóðaratkvæðagreiðslu um að sækja aftur um aðild neitað skýrt og greinilega. Einnig kom fram að flokkurinn hygðist ekki sækja um aðild að sambandinu á ný.

Þá sagðist flokkurinn ekki styðja lagafrumvarp um bókun 35 við EES samninginn, sem snýr að því að reglur frá Evrópusambandinu sem innleiddar eru í gegnum EES gangi framar almennum íslenskum lögum.

Segir ráðherra segja „bara eitthvað“

Sigmundur Davíð segir í færslunni að ráðherrar hafi á undanförnum árum vanist því að fara með fullyrðingar án þess að þær standist skoðun.

„Ráðherrar eru búnir að venja sig á að segja bara eitthvað,“ skrifar hann.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing