Formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, gagnrýndi á Viðreisn í stuttri færslu á Facebook í dag.
Þar segir hann þingflokk Viðreisnar vera „mjög sérstæðan söfnuð“ og áhugavert rannsóknarefni fyrir vísindamenn.
Tilefni skrifanna er umfjöllun Vísis um snörp orðaskipti Ingibjargar Davíðsdóttur, þingmanns Miðflokksins, og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Alþingi í morgun.
Sigmundur Davíð gagnrýnir það sem hann kallar trúarjátningu Viðreisnar um EES samninginn og segir flokkinn saka gagnrýnendur um að vilja segja upp samningnum, jafnvel þótt Viðreisn sjálf haldi því fram að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið.
„Það sem gerir þetta enn sérkennilegra er að Viðreisn er eini flokkurinn sem heldur því óhikað fram að við eigum að fara úr EES,“ skrifar Sigmundur. „Þ.e. fórna því sem þau kalla besta samning sem Ísland hefur gert fyrir aðild að hnignunarbandalagi Evrópu.“
Snörp orðaskipti á Alþingi um meint afskipti ESB
Í óundirbúnum fyrirspurnartíma spurði Ingibjörg Davíðsdóttir ráðherrann um meint pólitísk afskipti Evrópusambandsins í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna Íslands.
Vísaði hún til umfjöllunar í skýrslu utanríkismálanefndar Evrópuþingsins um stefnu ESB gagnvart Norðurslóðum.
„Hvaða samskipti og upplýsingaskipti liggja hér að baki milli ESB og utanríkisráðherra?“ spurði Ingibjörg og innti eftir því hvort ráðherrann hygðist gera athugasemdir við það sem hún taldi möguleg afskipti af íslenskum innanríkismálum.
Þorgerður Katrín hafnaði þessum áhyggjum og sagði utanríkisstefnu Íslands alfarið mótaða innanlands.
Hún bætti við að hún hefði engin áhrif á það hvað væri sagt í skýrslum stofnana ESB og að ESB hefði enga aðkomu að þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga.
„Ég muni ekki hætta að eiga samskipti við önnur ríki og stofnanir þrátt fyrir einhverja taugaveiklun innan raða Miðflokksins,“ sagði hún.
Í kjölfar orðaskiptanna birtu fjölmiðlar frétt, sem Sigmundur Davíð svaraði með fyrrnefndri færslu á Facebook.
Þar hélt hann áfram gagnrýni á Viðreisn og fullyrti að flokkurinn væri sá eini sem vilji í raun yfirgefa EES samninginn með því að ganga í Evrópusambandið.