Sigmundur Davíð segir vókið ekki ennþá dautt því það sé inngróið í íslenskar stofnanir

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að svokallað „vók“ sé orðið inngróið í íslenskt stjórnkerfi, stofnanir og fyrirtæki. Þetta kemur fram í þættinum Ein Pæling þar sem Sigmundur var gestur Þórarins Hjartarsonar.

Segir þróunina halda áfram þrátt fyrir breytta umræðu

Í þættinum segir Sigmundur að þrátt fyrir að fleiri séu farnir að gagnrýna hugmyndafræðina og telji hana hafa runnið sitt skeið, þá hafi hún ekki horfið úr opinberum kerfum.

Auglýsing

„Vókið er orðið inngróið í stjórnkerfið, í stofnanirnar, í fyrirtækin,“ segir hann og bætir við að þó almenningur sé farinn að vakna og átta sig á hvers konar vitleysa þetta var allt saman þá fylgi stofnanir áfram sinni stefnu óháð almenningsáliti.

Hann nefnir Háskóla Íslands sem dæmi og segir að margar ríkisstofnanir haldi áfram á sömu braut, án þess að taka mið af umræðu í samfélaginu. Að hans mati muni þróunin halda áfram nema lýðræðislega kjörnir fulltrúar grípi inn í.

Áhyggjur af stöðu félagsvísinda

Þórarinn sagðist geta tekið undir mat Sigmundar. Hann sagði að ákveðinn réttrúnaður hefði náð rótfestu innan stofnanamenningar víða í samfélaginu og að lítið benti til þess að það væri að breytast.

Hann sagðist finna fyrir breyttu viðhorfi gagnvart félagsvísindagráðum og sagði að innan fræðasamfélagsins væru uppi áhyggjur af stöðu þeirra.

„Núna í dag þegar fólk segist vera með einhverja félagsvísindagráðu þá er bara brosað út í annað,“ sagði hann og aðþróun innan ákveðinna fræðasviða hefði haft áhrif á hvernig horft er á gráðurnar að hans mati.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing