Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir stjórn á landamærum Íslands brýnasta verkefnið sem stjórnvöld standi frammi fyrir. Hann telur núverandi útlendingakerfi ekki taka mið af raunveruleikanum, kallar eftir nýjum lögum frá grunni og segir að fólk eigi ekki sjálfkrafa að geta sótt um hæli með því einu að mæta til landsins.
Þetta kemur fram í nýju viðtali við Sigmund Davíð í Spjallinu með Frosta Logasyni. Þar er meðal annars rætt um útlendingamál, stöðu velferðarkerfisins, þróunina í Evrópu, fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og viðbrögð hennar við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið.
Sigmundur segir áhrif útlendingamála ná til nánast allra þátta samfélagsins, þar á meðal ríkisfjármála, skólakerfisins, heilbrigðisþjónustunnar og húsnæðismarkaðarins.
„Númer eitt, tvö og þrjú: Við verðum að ná stjórn á landamærunum og við verðum að gera það sem allra, allra fyrst, því það verður erfiðara og erfiðara eftir því sem á líður.“
Vill ný útlendingalög frá grunni
Sigmundur segir nauðsynlegt að endurskoða íslenska útlendingakerfið í heild sinni en ekki láta duga að gera smávægilegar breytingar á gildandi lögum.
„Við þurfum að fara aðeins að skoða raunveruleikann. Hluti af því, og algjörlega nauðsynlegt skref, eru ný útlendingalög frá grunni sem taka mið af raunveruleikanum eins og hann er.“
Hann telur hælisleitendakerfið hafa þróast langt frá upphaflegum tilgangi sínum. Alþjóðlega flóttamannakerfið hafi verið mótað í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar til að vernda fólk sem flýði stríð eða stórfelldar ofsóknir yfir landamæri.
Nú snúist kerfið hins vegar að hans mati í auknum mæli um fólksflutninga sem séu skipulagðir af smyglurum og byggi á væntingum um réttindi og þjónustu í móttökuríkjunum.
Sigmundur segir einnig að misnotkun eigi sér stað á fleiri leiðum inn í landið, meðal annars í tengslum við atvinnuleyfi sérfræðinga, námsmannaleyfi og fjölskyldusameiningar.
Enginn fái hæli með því að mæta til Íslands
Sigmundur vill að Ísland taki upp fyrirkomulag í anda þeirrar stefnu sem dönsk stjórnvöld hafa rætt og þróað. Fólk eigi að geta sótt um vernd frá öðru landi, en ekki öðlast rétt til hælismeðferðar með því einu að koma til Íslands.
„Ég er eindregið á því að taka upp þá stefnu hér að enginn fái hæli á Íslandi ef hann mætir hingað til að sækja um hæli.“
Hann segir að umsóknir yrðu þess í stað lagðar fram utan Íslands og íslensk stjórnvöld gætu sjálf metið hverjum yrði boðin vernd.
„Þú getur sótt um hæli á Íslandi annars staðar frá, en þá er það okkar að meta hverjum við ætlum að bjóða.“
Sigmundur hafnar því að alþjóðasamningar útiloki slíkt fyrirkomulag og bendir á að Danmörk sé bæði aðili að Schengen-samstarfinu og sömu helstu mannréttindasamningum og Ísland.
„Við erum fullvalda ríki. Ef ekki á að verja landamærin með því að standa á fullveldinu, hvar ætlarðu þá að gera það?“
Segir smábreytingar geta tafið raunverulegar aðgerðir
Sigmundur segist hafa stutt ýmis frumvörp dómsmálaráðherra sem gangi í átt að hertum útlendingareglum. Hann telur þau þó hafa lítil áhrif á heildarþróunina.
Slíkar breytingar geti jafnvel skapað falskt öryggi, þar sem stjórnvöld geti vísað til þeirra sem sönnunar þess að verið sé að taka á vandanum.
„Ógagnið sem þau gera er að þau koma í veg fyrir að gripið sé til alvöru aðgerða í millitíðinni.“
Hann segir stjórnmálamenn þá geta róað áhyggjur almennings með því að vísa til takmarkaðra lagabreytinga án þess að grundvallarvandinn sé leystur.
Velferðarkerfið ekki hannað fyrir þessa þróun
Sigmundur segir íslenska velferðarkerfið aldrei hafa verið hugsað þannig að fólk gæti komið til landsins og fengið víðtæk réttindi án þess að hafa áður tekið þátt í að fjármagna kerfið.
Hann telur stöðugt færri þurfa að standa undir útgjöldum hins opinbera á sama tíma og þeim fjölgi sem þiggi bætur eða þjónustu ríkisins.
Þar þurfi að gera greinarmun á fólki sem eigi sannanlega rétt á stuðningi og þeim tilvikum þar sem kerfið skapi litla hvata til atvinnuþátttöku.
„Það var aldrei hugsað þannig. Þetta er meðal annars afleiðing af raunveruleikarofi sem hefur heltekið stjórnmál og samfélagsumræðu á síðustu árum og að einhverju leyti áratugum.“
Hann segir jafnframt að gera verði skýrar kröfur um aðlögun, tungumálakunnáttu, atvinnuþátttöku og virðingu fyrir samfélaginu.
„Góður á kostnað annarra“
Sigmundur gagnrýnir harðlega þá nálgun að móttaka fólks til Vesturlanda sé í sjálfu sér mælikvarði á mannúð. Ef markmiðið væri fyrst og fremst að hjálpa sem flestum væri oft hægt að ná mun meiri árangri með aðstoð nær heimkynnum fólks.
„Þetta snýst um að upphefja sjálfan sig með því að sýna hvað þú ert góður, en reyndar góður á kostnað annarra – á kostnað þíns eigin samfélags.“
Hann segir hluta Vesturlandabúa líta á öryggi, velferð og félagslega samheldni sem sjálfgefin gæði sem muni haldast óbreytt óháð umfangi fólksflutninga eða menningarlegum breytingum.
Það sé að hans mati alvarlegur misskilningur.
Telur suma vilja „flytja inn kjósendur“
Einn umdeildasti hluti viðtalsins snýr að pólitískum áhrifum innflytjenda. Sigmundur segist áður hafa efast um að stjórnmálamenn gætu litið á innflytjendur sem framtíðarkjósendur, en að hann telji nú slíka hugsun útbreiddari en hann áður gerði.
„Ég er bara farinn að trúa því að þetta sé orðið nokkuð útbreiddur vilji til þess að flytja inn kjósendur með þessum hætti.“
Hann vísar meðal annars til kosningamynsturs í sænskum hverfum þar sem hátt hlutfall íbúa á rætur utan Evrópu. Þar hafi vinstriflokkar víða fengið yfirburðafylgi.
Sigmundur telur þetta geta haft áhrif á stefnu stjórnmálaflokka, sem fari í auknum mæli að laga málflutning sinn að kröfum skipulagðra kjósendahópa.
Hann varar við því að tiltölulega fámennir en samstilltir hópar geti öðlast mikil pólitísk áhrif, sérstaklega þegar mjótt er á munum milli stjórnmálafylkinga.
„Ef við förum í það að skipta út fólkinu sem hefur staðið undir þessu öllu fyrir aðra sem ætla bara að kjósa vinstriöflin, þá fer ekki vel og þá verður ekkert aftur snúið.“
Ísland að endurtaka mistök Evrópu
Sigmundur segir stjórnmálamenn á Íslandi hafa alla möguleika á að læra af reynslu annarra Evrópuríkja en virðist þess í stað einsetja sér að endurtaka sömu mistök.
Hann nefnir sérstaklega Svíþjóð, Þýskaland og Bretland og segir hefðbundna stjórnmálaflokka hafa brugðist við vaxandi áhyggjum almennings með því að gera lítið úr þeim fremur en að endurskoða eigin stefnu.
Uppgangur flokka á borð við Alternative für Deutschland sé að hans mati afleiðing þess að aðrir flokkar hafi ekki viljað ræða vandann af hreinskilni.
„Hinir flokkarnir fara ekki að spá: Getur verið að við höfum að einhverju leyti mislesið þetta? Getum við endurskoðað eitthvað hjá sjálfum okkur? Nei, það eru bara kjósendurnir sem eru svona vitlausir.“
Hann segir rof hafa myndast milli almennings annars vegar og hefðbundinna stjórnmálaflokka og fjölmiðla hins vegar.
Fólk upplifi annan veruleika í nærumhverfi sínu en þann sem lýst sé í fjölmiðlum og missi fyrir vikið traust á þeim stofnunum sem eigi að miðla upplýsingum og bregðast við vandanum.
Skólar, heilbrigðiskerfi og húsnæðismarkaður undir álagi
Sigmundur tengir útlendingamálin einnig beint við ríkisfjármálin. Hann segir fjölgun barna með ólíkan tungumála- og menningarbakgrunn auka kostnað skólakerfisins verulega.
Sama eigi við um heilbrigðiskerfið og húsnæðismarkaðinn.
„Við erum rúmlega 300 þúsund manna þjóð að reyna að vera með grunnskólakennslu á hundrað tungumálum og vera með dýrasta grunnskólakerfi í heimi en ekki árangur eftir því.“
Hann segir húsnæðisskortinn ekki fyrst og fremst stafa af náttúrulegri fjölgun Íslendinga heldur hraðri fólksfjölgun vegna aðflutnings.
„Skorturinn á húsnæði er tilkominn vegna innflutnings fólks.“
Þessi þróun takmarki möguleika stjórnvalda til að bæta opinbera þjónustu, lækka ríkisútgjöld og ná stjórn á verðbólgu.
Hér fyrir neðan má sjá hluta úr viðtalinu en viljir þú sjá það í fullri lengd mælum við með áskrift á Brotkast.is.