Ástralska lögreglan hefur staðfest að mennirnir sem réðust að Hanukkah hátíð á Bondi Beach í Sydney á sunnudagskvöld voru feðgar.
Árásin, sem yfirvöld hafa skilgreint sem hryðjuverk, kostaði að minnsta kosti 16 manns lífið og tugir slösuðust.
Árásin átti sér stað skömmu fyrir klukkan 19 að staðartíma þegar fjölskyldur og gestir gyðingasamfélagsins voru saman komnir til að fagna fyrsta degi Hanukkah við ströndina.
Skutu af göngubrú yfir mannfjöldann
Samkvæmt vitnum stigu mennirnir út úr bíl sínum við Campbell Parade og skutu á fólk í um tíu mínútur.
Talið er að um 50 skotum hafi verið hleypt af á þessu stutta tímabili.
Annar látinn, hinn í haldi lögreglu
Annar árásarmannanna, 50 ára faðir, var skotinn til bana á vettvangi.
Sonur hans, Naveed Akram, 24 ára, var skotinn, handtekinn og er nú í haldi lögreglu þar sem hann nýtur læknishjálpar.
Lögregla segir að bíll feðganna, sem fannst nálægt vettvangi, hafi verið skreyttur fána hryðjuverkasamtakanna ISIS og hafi staðið nærri vettvangi árásarinnar.
Börn meðal fórnarlamba
Tala látinna eru nú 16 og eru fórnarlömbin á aldrinum 10 til 87 ára.
Barn lést á Barnaspítalanum í Randwick og fjögur önnur börn voru flutt þangað til meðferðar, að sögn heilbrigðisyfirvalda í New South Wales.
ASIO viðurkennir að árásarmaður hafi verið kunnugur yfirvöldum
Yfirmaður áströlsku eftirlitsstofnunarinnar ASIO, Mike Burgess, staðfesti að annar árásarmannanna hafi verið kunnur stofnuninni, en þó ekki metinn sem ógn.
Rannsókn málsins stendur yfir og lögregla segir frekari upplýsingar verða birtar eftir því sem þær liggja fyrir.
Full footage shows the moment police confronted the Bondi Beach shooter and neutralized two suspects. pic.twitter.com/elK3dVW7NE
— WAR (@warsurveillance) December 14, 2025